156. löggjafarþing — 32. fundur,  29. apr. 2025.

fjáraukalög 2025.

319. mál
[15:57]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Já, hann er þunnt skipaður bekkurinn af stjórnarliðum hér í augnablikinu, þeir eru jafn margir og geirfuglarnir nú um stundir. Maður reynir alltaf að útskýra og afsaka þá sem misstíga sig, jafnvel þó að þeir séu ekki endilega með manni í lið í þessu tilviki pólitískt, og mér þótti þetta svona framan af útskýrast af reynsluleysi. Það eru auðvitað ekki margir í þingliði stjórnarflokkanna sem voru hér á síðasta þingi. Þeir sem voru hér á síðasta þingi eru flestir í ráðherrastólum núna. Það hefði kannski átt að orsaka það að mínu mati að þeir væru líklegri til að sitja undir umræðunni, verandi til þess að gera nýkomnir úr þeirri stöðu að tala máli stjórnarandstöðu hér í þinginu árum saman. En það virðist alls ekki hafa orðið raunin. Það að þingmenn, sérstaklega þingmenn í þeim nefndum sem málum er vísað til, séu hóflega þaulsetnir, eins og við höfum séð hér undanfarið, held ég að hljóti að skýrast af einhverju, svo ég tali nú bara fyrir þann hóp sem ég er hluti af, reynsluleysi þingflokksformanna, að skipa sínu fólki ekki til verka með þeim hætti að það þekki umræður sem áttu sér stað í málum, sérstaklega flóknum málum eins og þeim sem við ræðum hér og ræddum um jöfnunarsjóðinn, t.d. í gær. Það var mjög flókið mál sem fulltrúar í umhverfis- og samgöngunefnd hefðu svo sannarlega þurft að sitja undir og taka glósur í gegnum þá umræðu alla. En það virðist ekki vera stemningin. Ég trúi ekki öðru en að það færist til betri vegar á næsta þingi en ég er nú orðinn hóflega bjartsýnn á að það gerist núna.