156. löggjafarþing — 32. fundur,  29. apr. 2025.

fjáraukalög 2025.

319. mál
[16:00]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Aðeins örfá orð í þessa ágætu umræðu hér er varðar frumvarp um fjáraukalög fyrir árið 2025, frumvarp sem núna er til meðferðar og lagt fram af hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra, með það að markmiði að mæta breytingum á forsendum fjárlaga sem samþykkt voru fyrir árið 2025, enda er fjáraukalögum ætlað að laga opinberar fjárheimildir að raunverulegum aðstæðum, svo sem ef tekjur reynast hærri eða lægri en áætlað var eða ný útgjöld koma til vegna ófyrirséðra atburða eða ákvarðana stjórnvalda og Alþingis.

Einn mikilvægur þáttur kemur fram í frumvarpinu er varðar tengsl ríkissjóðs við gamla Íbúðalánasjóð. Frá því að sjóðurinn hóf starfsemi sína undir þessu nafni 1999, ef ég man rétt, hafði hann gegnt lykilhlutverki í opinberri húsnæðisstefnu með því að veita lán til íbúðarkaupa og síðar að hluta til að sinna félagslegu hlutverki á húsnæðismarkaði. Eftir fjármálahrunið 2008, og í kjölfar sífellt harðari gagnrýni á áhættustýringu og sjálfbærni sjóðsins, þróaðist staðan þannig að ríkið þurfti að grípa inn í með margvíslegum hætti til að tryggja greiðsluhæfi sjóðsins.

Á undanförnum árum hefur afskriftum og skuldauppgjörum Íbúðalánasjóðs verið komið fyrir í fjárlögum og fjáraukalögum, þar sem ríkissjóður hefur tekið á sig verulegar fjárhagslegar skuldbindingar vegna rekstrarhalla og eiginfjárvanda sjóðsins. Fjáraukalagafrumvarp 2025 tekur áfram mið af þessum sögulegu skuldbindingum, þar sem kveðið er á um sérstakar fjárveitingar og/eða afskriftir sem tengjast eldri skuldbindingum ríkisins vegna Íbúðalánasjóðs. Þetta er þannig ekki aðeins fjárhagslegt atriði heldur endurspeglar dýpri, stefnumótandi og pólitísk tengsl við þróun húsnæðismála á Íslandi.

Í frumvarpinu, í kafla þar sem er sögulegt yfirlit, fæst nokkuð skýr mynd af því hvernig þessi þróun hefur átt sér stað. Þar er m.a. rakið hvernig ákvarðanir fyrri ára hafa leitt til áframhaldandi fjárútláta ríkissjóðs og hvernig ábyrgð ríkisins á fyrrum opinberum sjóðum, eins og Íbúðalánasjóði, heldur áfram að kalla á sérstakar aðgerðir, jafnvel mörgum árum eftir að lagabreytingar og stjórnunarendurskipulag hefur átt sér stað. Þannig gefur þetta yfirlit allgóða mynd af því hvernig lagasetningarferlið nýtist ekki aðeins til að móta nýja stefnu heldur einnig til að klára ábyrgð fortíðar.

Tengsl ríkisins við Íbúðalánasjóð eru gott dæmi um hvernig opinber fjármál eru sífellt í endurskoðun og hvernig ákvarðanir sem teknar voru í fortíðinni hafa margþætt og langvarandi áhrif á opinbera fjármálastjórn. Af því að ég er hér á þessum sögulegu nótum og hugsanlega einhverjir, kannski þó einkum af yngri kynslóðinni, sem að átta sig ekki á eða þekkja ekki til þessarar sögu, enda alltaf verið að breyta um nöfn sem auðveldar fólki ekki að halda tímalínunni, þá er rétt að víkja alveg sérstaklega að sögulegu samhengi sjóðsins gagnvart landsbyggðinni. Það var nú ekki öðru til að dreifa á sínum tíma, lán einfaldlega fengust ekki út á land gegn þeim veðum sem þar voru í boði. Íbúðalánasjóður varð því oft og tíðum eina úrræði landsbyggðarfólks og allt í lagi að halda því til haga. Með öðrum orðum, uppleggið og hugmyndafræðin að baki sjóðsins hafði góðan ásetning.

Það er líka allt í lagi að halda því til haga að einkageirinn á þessum tíma hafði ekki vilja eða getu til að sinna þessum hópi lántakenda. Það var ósköp einfaldlega þannig. Það var ekkert annað að leita. Fólk, ungt fólk, með börn að reyna að koma þaki yfir höfuðið, það hafði bara á þessum tíma, úti á landi og í dreifðum byggðum, ekki í önnur hús að venda þegar það vantaði lánsfé. Þess vegna var farið af stað með þetta módel.

Hvaða lærdóm er hægt að draga af þessu? Hann er auðvitað margþættur, til að mynda ef við viljum ekki fara í gegnum svona ferli sem við stöndum í hér og nú, að takast á við svona fortíðardrauga. Það er margt eflaust gagnrýnisvert í þeim ákvörðunum sem teknar voru á sínum tíma. Ef við viljum ekki þurfa að vera innan nokkurra ára í sömu stöðu aftur, haldandi svipaðar ræður, sennilega samhljóma ræður, þá þurfa líka þær lánastofnanir sem eru á markaði núna að gæta þess að landsbyggðinni sé sinnt á jafnréttisgrundvelli. Hvað á ég við með jafnréttisgrundvelli? Jú, ég á við að landsbyggðinni sé sinnt á jafnréttisgrundvelli gagnvart suðvesturhorninu. Það þýðir að sú skylda hvílir á lánastofnunum að meta hæfi þeirra veða sem í boði eru á landsbyggðinni til einhvers sem raunverulega er einhvers virði. Þá er ekki nóg að horfa bara á eitt ár eða tvö aftur í tímann, á líðandi ár með spádómum um árið sem er að koma, því það hefur í sögulegu samhengi ekkert verið neitt sérstaklega heppileg aðferðafræði til að meta hæfi veða. Því leyfi ég mér að fullyrða það, frú forseti, að það er m.a. vegna þessa að það eru tiltölulega fá ár síðan að einkabanki á markaði — ég ætla bara að giska á þetta, ég man þetta ekki alveg upp á ár, en þetta eru líklega 23 eða 24 ár síðan — með útibú víðs vegar um landið treysti sér ekki til að lána örfáar milljónir til jarðakaupa með miklum húsakosti, og hluti húsakostsins, sérstaklega er varðar útihúsin, var nýbyggður. Það var á þeirri forsendu eða líklega, ég gef mér að menn hafi haldið að hlutirnir myndu halda áfram að þróast eins, að húsakostur í dreifbýli, jafnvel sá er stæði á tiltölulega góðum jörðum, væri ekki ásættanlegt eða nægjanlegt veð. Þetta mál þekkir sá sem hér stendur frá A til Ö. Þetta voru rökin sem lögð voru fram. Það var reyndar, svo allrar sanngirni sé gætt gagnvart viðkomandi banka, í boði lítils háttar lán til að kaupa litla blokkaríbúð, enda var þá eiginfjárhlutfallið á móti láni til íbúðarkaupanna orðið slíkt að það svona jaðraði við að það þyrfti ekki aðstoð bankans.

En hvað hefur síðan gerst? Líklega hefur fátt í landinu vaxið jafn mikið í verði frá þessum tíma eins og góðar byggingar sem standa á góðri jörð. En þetta voru engu að síður spádómarnir þá, þetta var ekki lánshæft eða illlánanlegt til þessara kaupa. Í dag sýnist mér að um stóran hluta landsins sé slegist um nákvæmlega þessar jarðir, bæði auðvitað til búskapar en ekkert síður í seinni tíð og það er raunverulega önnur umræða er varðar bara að ekki verði þrengt að landbúnaði. Ekki síður hefur verið eftirspurn eftir þessum jörðum til að brytja þær niður og byggja þar íbúðarhúsnæði, ýmist til sumardvalar eða heilsársbúsetu, svoleiðis að allir þeir spádómar sem lágu til grundvallar þeim rökstuðningi bankans um hvað teldist ásættanlegar lánshæfiseignir til lengri tíma reyndust algerlega á sandi byggðir. Og af hverju ætti ég, og við öll, að telja að þeir sem eru að spá fyrir um það núna hvað eru bestu eignirnar, hvort það er hús á Seltjarnarnesi eða lóð á Akureyri eða ódýrt hús á Raufarhöfn — hver erum við til að segja hvað verður eftir 25 ár spennandi eign og besta veðið?

Hvers vegna er ég að rifja þetta allt saman upp? Jú, það er vegna þess í þessu samhengi sem ég sagði áðan, og fór yfir áðan, að við þurftum að búa til þetta „system“, afsakið, þetta var sletta, frú forseti, þetta umhverfi til þess eins að fólk sem að ekki kaus sér búsetu hér á höfuðborgarsvæðinu, í nágrannasveitarfélögum eða á Akureyri, hefði yfir höfuð aðgang að lánsfé. Mér finnst allt í lagi að halda því til haga. Það hvernig haldið var á rekstrinum á sínum tíma í framhaldinu, varðandi það sem ég veit að hefur verið rætt hér í dag, að útlán sjóðsins voru með uppgreiðsluákvæðum á meðan fjármögnun sjóðsins var ekki með slíkum ákvæðum og bjó þar af leiðandi til snjóbolta sem var fljótur að vinda upp á sig, þá er samt rétt, til að gæta allrar sanngirni, að hafa þessa sögu í huga, hvað það var sem þingmenn á sínum tíma voru að hugsa um og við hvaða ástandi menn voru að bregðast. Það er ekkert sem segir okkur, með fullri virðingu fyrir hinum frjálsa markaði, og auðvitað þarf hann að fá að þrífast, að hinn frjálsi markaður geti ekki búið til slíka stöðu aftur. Ef það horfir allt í einu illa um skeið með atvinnumál í afmörkuðum landshluta og það er eingöngu í boði að sækja fjármagn inn í einkageirann og einkageirinn hefur engar samfélagslegar skyldur, þá getur bara vel komið upp hér í þessum sal ákall um það að við búum til eitthvert opinbert kerfi sem að tryggir fólki í það minnsta tímabundið aðgang að slíku fé. Ég vona samt að ég sé ekki sannspár eða sé ekki að lýsa framtíðini, en verði það svo þá vona ég einnig, neyðist menn í einhverjar slíkar aðgerðir, að þá verði alla vega ekki búið til neitt ohf.-félag í viðbót. Nægur er nú vandi okkar hér að glíma við þau ríki innan ríkisins sem nú þegar hafa verið stofnuð.

Ég læt þessa stuttu sögulegu ádrepu mína, frú forseti, duga í bili. Mér fannst einfaldlega nauðsynlegt að þetta kæmi fram í umræðunni í ljósi þess hve gríðarlega harða gagnrýni þetta hefur oft fengið og margt af þeirri gagnrýni á alveg rétt á sér. En það voru þessar ástæður. Menn fundu ekki aðrar leiðir á sínum tíma til að hjálpa fólki að koma þaki yfir höfuðið og við erum enn í þessum sölum, með mjög reglulegu millibili, einmitt að ræða tækifæri fólks til að koma sér þaki yfir höfuðið, þó að það sé reyndar að undanförnu yfirleitt undir því yfirskini að vaxtastigið sé með þeim hætti núna að slíkt sé erfitt. En þetta var líka erfitt þá, bara á öðrum forsendum, þeim forsendum sem ég hef hér rakið. Ég læt þetta duga í bili, frú forseti.