156. löggjafarþing — 32. fundur,  29. apr. 2025.

fjáraukalög 2025.

319. mál
[16:17]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson var með ágætisbrýningu um þann tíma í rekstri sjóðsins sem ég fjallaði líklega hvað minnst um. Rökin fyrir áframhaldandi starfsemi á þessum forsendum sem ég lýsti í ræðu minni hér áðan voru að sögn hv. þingmanns löngu farin. Ég hygg að það megi taka undir það a.m.k. að mörgu leyti, þá einkum og sér í lagi kannski hvernig — þá er ég ekki bara að tala um fjármögnunina og þær lánalínur, við þekkjum þá umræðu alla saman, þetta uppgreiðsluvesen og það allt saman, heldur var sjóðurinn hreinlega kominn í annars konar starfsemi. Og bara af því að ég var nú í sögunni þá er ágætt að halda því til haga, eins og fram kom í andsvari hv. þm. Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, að þetta er líka hluti af sögu sjóðsins. Þetta er kannski ekki sá hluti af sögu sjóðsins sem ég kom upp til að halda á lofti eða verja með nokkrum hætti en hins vegar sennilega sá hluti af sögu sjóðsins sem átti hvað stærstan þátt í því að svo fór sem fór ásamt þeim lánalínum sem við höfum svo sem ekkert kafað í hér, ég og hv. þingmaður. Þarna var sjóðurinn kominn í aðra starfsemi á sínum tíma. Og það er ekkert launungarmál að sá sem hér stendur stóð með þessum sjóði til að byrja með og við á sínum tíma sáum kannski ekki þessa breytingu fyrir okkur þá.