fjáraukalög 2025.
Frú forseti. Já, þetta er nefnilega um margt áhugaverð saga og gott að hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson nefnir hér rannsóknarskýrslu Alþingis því að fyrir þá sem hafa áhuga á þessari sögu þá er hægt að nálgast hana þar og henni gerð þar allgóð skil. Hún varðar náttúrlega þá fyrst og fremst síðari tíma ákvarðanir, ákvarðanir sem eru teknar eftir að eðli sjóðsins tekur miklum breytingum. Í þessari skýrslu, þó að ég muni nú ekki orðalagið enda kannski ekki nýbúinn að fletta henni, er farið held ég talsvert vel yfir, hver svo sem skýringin var, skort á eftirliti; hvort hann var vegna þess að einstaklingar, háttvirtir, kjörnir hér í sal, hreinlega áttuðu sig ekki á hvað var að gerast eða að menn höfðu bara einhvern veginn ekki yfirsýnina, ég átta mig ekki á því.
Nú er hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson búinn að vera nokkur ár í þessum sal og í ýmsum hlutverkum og man þetta kannski betur en sá sem hér stendur sem hefur varið stærstum hluta af sínum pólitísku tíma á varamannabekknum. En að missa tengsl, hv. þingmaður nefndi það að missa tengsl. Það er áhugaverður punktur. Það er áhugaverðasti punkturinn, að mínu mati, í því sem hv. þingmaður fór yfir, því að ég held að það gæti verið að gerast aftur núna. Nú er það hins vegar að gerast undir rosa fínum orðum: faglega skipað í stjórnir og skipað af einhverju fagráði sem er skipað af ráðherra og einhverra hluta vegna, þótt það tengist ekki þessari umræðu, frú forseti, virðist þessi faglega lína liggja eftir flokkslínum.