156. löggjafarþing — 32. fundur,  29. apr. 2025.

fjáraukalög 2025.

319. mál
[16:30]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Ég hef á liðnum árum fjallað alloft um stöðu Íbúðalánasjóðs og þróunina þar þannig að ég ætla ekki að að rekja það í löngu máli. Aðrir hv. þingmenn hafa gert það ágætlega hérna á undan. Til að liðka fyrir þingstörfum ætla ég að stytta mál mitt og einbeita mér að lærdómnum sem að við þurfum að draga af því sem ríkið situr nú uppi með og kynnt er í þessu frumvarpi. Ég óttast nefnilega að það hafi ekki gengið sérstaklega vel að læra af reynslunni. Vandinn er sá, eins og mér hefur orðið tíðrætt um, að í ríkisfjármálum skortir mjög á að litið sé á heildarmyndina og að litið sé til langs tíma. Langtímasýn í ríkisfjármálum er eitthvað sem að hefur gengið afskaplega erfiðlega fyrir margar ríkisstjórnir, þar með talið þessa og þá síðustu, að temja sér og það þrátt fyrir lög um opinber fjármál sem hafa nú ekki skilað tilætluðum árangri eða áhrifum. Afleiðingin er sú að mistök eru líklegri en ella. Við sjáum nú bara nýjasta dæmið með fjármálaáætlun þessarar ríkisstjórnar til næstu fimm ára. Hún reyndist í raun ótæk til umfjöllunar hér í þinginu af því að hún var ekki fullunnin. Það var ekki búið að líta á heildarmyndina og langtímaáhrifin.

Og svo vofir nú yfir okkur stórt mál sem að varðar undirstöðuatvinnugrein landsins, varðar sjávarútveginn, og þar líka í máli sem að varðar hagsmuni þjóðarinnar allrar, varðar tilvist heilu byggðarlaganna, möguleika okkar á að hér halda uppi velferðarkerfi, halda áfram að byggja það upp, að þar hafa menn einfaldlega ekki, að því er virðist, litið á heildarmyndina, beinlínis forðast það. Beinlínis forðast að reikna heildaráhrif, nettóáhrifin af þeim stóru aðgerðum sem verið er að boða. Svo er bent á að líkleg áhrif af þessu geti hreinlega verið þau að skatttekjur ríkisins minnki og að þessi grein, sjávarútvegur, verði ekki sama stoð og hún hefur verið hér á Íslandi við að viðhalda m.a. velferðarkerfi landsins. Þá leyfa menn sér að nálgast málið með frösum og yfirlýsingum á sama tíma og þeir neita að bregðast við kröfunni um að upplýsa um útreikning á áhrifunum. Það er ekki bara krafa frá stjórnarandstöðunni, lögum samkvæmt ber ríkisstjórninni að gera það, ég tala nú ekki um ef hún hygðist tileinka sér fagleg vinnubrögð. En í stað þess fáum við bara að heyra: Við sjáum bara hvernig þetta þróast og við vinnum úr þessu og hinu á næsta ári og eitthvað annað verður skoðað næstu tíu árin. Á meðan á að ráðast í breytingar sem eru líklegar til þess að ýta mjög verulega undir samþjöppun í íslenskum sjávarútvegi, fækka sjávarútvegsfyrirtækjum, og þar af leiðandi þeim byggðarlögum sem geta reitt sig á sjávarútveg sem undirstöðuatvinnugrein, en um leið ýta vinnslunni úr landi, sem einnig hefur þá mjög veruleg áhrif á byggðarlögin.

Ástæðan fyrir því ég er að nefna þetta, í samhengi við þetta mál, er að hér erum við að tala um hluti sem betur hefðu mátt fara á sínum tíma og menn hafa ólíkar skoðanir á því hversu vel var hægt að sjá það fyrir að þetta gæti þróast með þeim hætti sem það gerði. En kostnaðurinn reyndist gríðarlegur, það liggur hér fyrir. Það er þess vegna kaldhæðnislegt að ríkisstjórnin leggi þetta fram á sama tíma og hún er að boða mál sem hún viðurkennir nánast að sé ekki fullbúið. Í öllu fallið getur hún ekki veitt upplýsingarnar um það hvernig það mál komi til með að þróast, hver verði heildarniðurstaðan, hvort að það leiði til aukinna tekna fyrir ríkið eða jafnvel samdráttar í hagvexti á Íslandi.

Það sem maður óttast er að ef fram heldur sem horfir og þessi ríkisstjórn situr lengi og afgreiðir sín mál, er að þá verði ófá svona mál sem taka þurfi á hér á Alþingi á næstu árum, jafnvel áratugum. Þetta mál nær áratugi aftur í tímann á vissan hátt, að miklu leyti, vegna þess að framtíðarþingmenn fái til sín frumvarp til fjáraukalaga vegna mistaka sem að núverandi ríkisstjórn hafi gert og kosið að gera með opin augun, eða með því að loka augunum til að sjá ekki raunveruleikann sem blasir við. Í þeim aðstæðum hefur þingið mjög mikilvægu eftirlitshlutverki að gegna. Þetta var nefnt hérna áðan. Hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson nefndi eftirlitshlutverk þingsins, sem er vissulega mikið þó að þingið hafi oft á tíðum staðið svolítið veikt gagnvart framkvæmdarvaldinu og einfaldlega verið að ætlast til þess af þingmönnum stjórnarliðsins að þeir fylgdu í blindni ráðherrum sínum og þá er auðvitað hætta á mistökum ef það eru færri sem þora eða eru í aðstöðu til að benda á það sem betur megi fara. En ég ætla að hvetja þingmenn stjórnarliðsins nú til að vara við ef að þeir telja eitthvað af því sem ríkisstjórnin er að boða varasamt eða þarfnist a.m.k. frekari skoðunar.

Stjórnarandstaðan mun að sjálfsögðu leitast við að bæta mál þessarar ríkisstjórnar, laga þau eftir atvikum, eða helst, þegar þannig ber undir, að forða þeim frá því að verða að veruleika, slæmum málum. Það er skylda okkar hér. En það er lítið gagn í því ef að ríkisstjórn fæst ekki til að hlusta, fæst ekki til að svara spurningum þingmanna stjórnarandstöðunnar, svarar jafnvel með skætingi, útúrsnúningum og neitar jafnvel að birta gögn sem eru lögbundin, sem henni ber lagaleg skylda til að birta. Þá er hættan sú að það verði gerð fleiri svona mistök því að þrátt fyrir mikilvægi eftirlitshlutverks Alþingis þá er Alþingi að veikjast.

Ég hef á tilfinningunni að Alþingi, hinir kjörnu fulltrúar og staða þeirra sé áfram að veikjast við stjórn landsins. Eitt af því sem er kannski svolítið lýsandi fyrir það og hefur verið nefnt fyrr í þessari umræðu er að nú hafa kjörnir fulltrúar, fulltrúar almennings sem hægt er að refsa í kosningum eða verðlauna eftir atvikum, ekki lengur neitt um það að segja hvernig fjölmörg ríkisfyrirtæki, opinber hlutafélög svokölluð, eru rekin. Það er með öðrum orðum búið að skera á eftirlitshlutverk stjórnmálanna, lýðræðisins, gagnvart þessum fyrirtækjum sem fara sínu fram með hætti sem getur oft á tíðum verið býsna skrautlegur eins og dæmi hafa birst um nýverið. Þetta var einmitt kynnt sem einhvers konar framfaraskref, að kjörnir fulltrúar, flokkarnir, fulltrúar almennings, hefðu ekki lengur neitt um það að segja hvernig stjórnir þessara fyrirtækja væru skipaðar. Í stað þess skyldi bara einn aðili gera það, þ.e. ráðherrann, ráðherrann sem skipaði nefnd til að gefa honum hugmyndir um hverja mætti skipa og veldi sjálfur úr í öll stjórnarsætin. Við höfum nú séð afleiðingarnar af því og raunar frá fleirum en hæstv. fjármálaráðherra, eins og birtist mjög glögglega við skipun stjórnar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar þar sem að ráðherrann skipaði eingöngu fulltrúa sem voru virkir í pólitík síns flokks. Ætlar hæstv. ráðherra og flokkur hans að taka ábyrgð á því ef sú stjórn gerir mistök í framtíðinni? Það er reyndar ólíklegt því að það virðist eiga að skilja ábyrgðina eftir. En valdið er um leið tekið af lýðræðinu og flutt til kerfisins í enn ríkari mæli en áður.

Þetta er ekki heillavænleg þróun, frú forseti, því að ef lýðræðið, almenningur, kjósendur eiga að geta haft eitthvað um það að segja hvernig ríkinu er stjórnað þá þurfa þeir að hafa einhverja aðkomu að þeirri stjórn. En það er alltaf verið að skerða þá afkomu jafnt og þétt. Og þegar það verða mistök í framtíðinni, hver ætlar þá að taka ábyrgð? Það verður örugglega mjög erfitt að finna þá sem verða reiðubúnir til þess.

Þetta tengist líka máli sem við ræddum stuttlega hér fyrr í dag í sérstakri umræðu um fjárfestingarstefnu lífeyrissjóðanna þar sem að frummælandinn, málshefjandinn, hv. þm. Sigríður Á. Andersen, vakti athygli á því hvernig íslenskir lífeyrissjóðir væru farnir að meta fjárfestingarkosti og afskrifa ákveðna fjárfestingarkosti, ekki á þeim forsendum að þeir myndu ekki vera líklegir til að veita mikla ávöxtun, heldur vegna þess að einhverjar siðferðilegar ástæður, út frá afmörkuðu siðferði, þýddu að ekki mætti fjárfesta í þeim fyrirtækjum. Þetta er reyndar stefna sem að ríkið hefur verið jafnt og þétt að innleiða hér, alla vega í orði, með endalausum straumi Evrópureglugerða þar sem, eins og svo oft er, er gjarnan gengið lengra en gerð var krafa um. Þannig er nú fjármálafyrirtækjum ætlað að meta alla fjárfestingarkosti, hvort sem um er að ræða skuldabréf eða hlutabréf, að meta þau fyrirtæki sem liggi þar að baki út frá alls konar forsendum sem fjármálafyrirtæki á Íslandi hafa nú kannski bara mjög takmarkaða möguleika á að meta; reikna kolefnisspor fyrirtækja og taka ákvörðun út frá því hvort að fyrirtækin fái lán eða hvort að hugsanlegir kaupendur, fjárfestar í þessum fyrirtækjum, fái að fjárfesta þar eða fái til þess fyrirgreiðslu. Þessi síaukna afskiptasemi kerfisins, hvort sem það er kerfið okkar hérna heima eða heildarkerfisins að meðtöldu evrópska kerfinu öllu, er ekki endilega líkleg til að skila árangri fyrir samfélagið og ekki endilega líkleg til þess að komist verði hjá stórum áföllum. Því að sagan sýnir það að kerfisræði án aðhalds, án gagnrýni, getur leitt til ákvarðana sem kosta gríðarlega mikla peninga þegar upp er staðið.

Að lokum þá ítreka ég að eitt og annað í þessu máli, í umræðu um það í gegnum tíðina, hefur ekki alveg staðist. Ásakanir í garð Íbúðalánasjóðs á sínum tíma, svona framan af, voru ekki alltaf sanngjarnar enda voru ýmsir fyrirvarar á því, hámark og slíkt, þegar Íbúðalánasjóður fór inn á þennan markað í fyrstu, svo bankarnir, hratt vaxandi bankar á fyrirhrunsárunum, hreinlega staðráðnir í því að gera út af við Íbúðalánasjóð. En þarna var undir mikil ríkisábyrgð og það er kannski mikilvæg áminning til okkar nú um að ríkið passi sig mjög vel hversu langt það gengur í að leggja skattfé og framtíðarskattfé undir þegar ákvarðanir eru teknar, en einnig að menn passi sig á því að ráðast ekki í stórar aðgerðir sem leiða af sér stórtjón. Ég tala nú ekki um þegar það er nánast fyrirsjáanlegt eins og í sumum þeirra mála sem nú eru uppi.