fjáraukalög 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans ræðu hérna varðandi þetta mál. Hann fór víða um, m.a. varðandi skipanir í stjórnir og nefndir núna og breytingar sem hafa orðið á því með nýrri ríkisstjórn. Auðvitað var það þannig að lögunum var breytt á síðasta ári en síðan er það ráðherrans að setja reglugerð um með hvaða hætti hann vill hafa þetta og er alveg frjálst að gera það. M.a. hefði verið hægt að leggja það til að hver þingflokkur myndi leggja til einstaklinga í þessar stjórnir en hafa kosið að gera það ekki. Maður veltir því svo fyrir sér, af því að um leið og við finnum til ábyrgðar sem stjórnarflokkar gagnvart því hvaða einstaklinga við skipum í stjórnir varðandi hæfi og annað, þá sjáum við að miðstýring á valdi getur verið áhættusöm. Í ljósi þess að við sjáum að nú er verið að skora á hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra að endurskipa í stjórn HMS. Ég held að það sé verkfræðingafélagið, eða eitthvað álíka, sem er að skora á hana í því efni einmitt út frá þessum faglega þætti.
Mig langaði aðeins að spyrja hv. þingmann hvað honum finnst varðandi þetta og eins varðandi skipan í aðrar stjórnir og nefndir. Við sjáum að það er verið að hreinsa út reynslumikið fólk, fólk sem hefur jafnvel setið í sömu stjórn í 15 eða 20 ár, þekkir rekstur félagsins eða fyrirtækisins í bak og fyrir og það er verið að skipa einstaklinga sem m.a. eiga engar tengingar við landsbyggðina heldur er þetta einskorðað við stórhöfuðborgarsvæðið og þetta er jafnvel einmitt í fyrirtækjum sem eiga uppruna sinn á landsbyggðinni. Mig langar aðeins að heyra hans viðhorf í tengslum við þetta.