fjáraukalög 2025.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Einmitt þegar kemur að aðhaldinu þá er það rosalega mikilvægt. Og þegar við sitjum hérna í stjórnarandstöðu, það er oft neikvætt orð og ég held að fólk líti svolítið neikvætt á það hlutverk. En hins vegar er þetta rosalega mikilvægt hlutverk, þ.e. að veita ríkisstjórn hverju sinni visst aðhald, bæði varðandi þau mál sem lögð eru fram og eins varðandi hvernig mál eru lögð fram af ríkisstjórn hverju sinni.
Nú fór hv. þingmaður aðeins yfir það varðandi hin ýmsu mál og ég mátti lesa úr orðum hans að hann væri m.a. að vísa í fjármálaáætlun sem var lögð hér fram án gagna sem tiltekin eru í lögum um opinber fjármál og skort á þeim. Mig langar aðeins að fá að heyra hvernig hv. þingmaður sér fyrir sér hvað hægt er að gera betur, fyrir utan auðvitað það að uppfylla lög um þau gögn sem við leggjum fram hér hverju sinni. Við erum að líta til fortíðar varðandi hvað við lærðum af ÍL-sjóði og hvernig við getum hagað hlutum betur varðandi framtíðina. Er eitthvað sem að hv. þingmaður sér sem er á áætlun til þess einmitt að bæta vinnubrögð og bæta verklag, bæta reglur og annað, hvort sem það er í lögum eða annað, til að varða leiðina til framtíðar? Þá á ég bæði við varðandi hlutverk Alþingis og eins hvernig við getum tryggt samfélagið okkar, við erum að tala um skattgreiðendur og fleira, að við séum ekki að auka byrðar á þá til framtíðar? Svo að ég taki þetta aðeins saman: Hvað getum við lært af sögunni og nýtt okkur til framtíðar? Hvað er verið að gera til að varða þá leið? Og ef ekkert, hvað er hægt að gera?