fjáraukalög 2025.
Frú forseti. Það er algjört grundvallaratriði að mínu mati að ef þessi mál eiga að lagast þá verði í auknum mæli að fara að líta á innihald málanna og ræða það. En mér finnst þróunin hafa verið á hinn veginn, að yfirborðsmennskan í umræðum um mál sé að aukast. Þá er kastað fram frösum eins og: Viljið þið ekki sanngjarna gjaldtöku af sjávarútvegi? Viljið þið ekki tryggja öllum húsnæði? o.s.frv., ef menn gera athugasemdir við innihaldið. En innihaldið er ekki alltaf til þess fallið að ná yfirlýstum markmiðum. Þess vegna verðum við að forðast popúlisma eins og mér finnst vera farið að einkenna núverandi ríkisstjórn í síauknum mæli. Mér finnst ágerast bara viku frá viku popúlísk nálgun stjórnarflokkanna. Sérstaklega hefur verið áhugavert að sjá hversu hratt Viðreisn hefur þróast í þá átt. Það vissu svo sem allir að Flokkur fólksins væri þess eðlis fyrir, og ég held að hann hafi jafnvel viðurkennt það sjálfur eða formaður hans, en Viðreisn virðist vera á hraðleið þangað líka. Og þá er bara hæðst að allri gagnrýni út frá yfirlýsta markmiðinu, út frá yfirskriftinni: Já, já, bara á móti því að þjóðin fái sinn sanngjarna arð af auðlindinni. Nei, það er enginn að segja það. En hafið þið skoðið ykkar eigið mál? Nei, þau hafa reyndar yfirleitt ekki gert það eins og komið hefur á daginn, þau geta ekki svarað fyrir það og þau hafa ekki reiknað það til enda. Þannig að ef við eigum að forðast svona slys í framtíðinni og laga þetta þá verðum við að fara að ræða hlutina út frá innihaldinu.