fjáraukalög 2025.
Virðulegur forseti. Okkar aðgerðasvið er í sjálfu sér í öllum samanburði ekki stórt. Það getur verið mjög viðkvæmt fyrir utanaðkomandi aðstæðum eins og dæmin sanna. Við getum farið svolítið aftur í tímann og rifjað það upp hvernig aflabrestur fór með samfélagið ár eftir ár, hvernig stríð og styrjaldir geta haft hér áhrif, farsóttir og náttúruhamfarir. Þetta er auðvitað allt eitthvað sem við þurfum að taka tillit til þegar við horfum til framtíðar um það hvernig við ætlum að haga okkar málum.
Hér ræðum við samfélagsbanka sem að á sínum tíma var settur á laggirnar á ábyrgð ríkissjóðs. Það er í sjálfu sér gott að vera vitur eftir á en margt hefði kannski mátt gera öðruvísi. Það er auðvitað til að læra af. Hann lendir síðan í vandræðum. Árið 2003–2004 fara viðskiptabankarnir að hasla sér völl á íbúðalánamarkaði og uppgreiðsla lána hefst. Sorgarsaga opinbers samfélagsbanka er staðreynd og skattborgararnir borga brúsann. Það er í raun alveg með ólíkindum að það skuli vera almenn umræða um samfélagsbanka í okkar pólitík í dag með þessa reynslu í farteskinu og auðvitað þær upplýsingar og þá reynslu sem við höfum af því að bankastarfsemi er áhættustarfsemi í sjálfu sér. Þegar við ræðum hér um sölu á mjög stórum eignarhlutum íslenska ríkisins í viðskiptabönkunum er því gjarnan haldið til haga að það sé svo mikill arður af þessari starfsemi — þetta sé ekkert nema peningatré til að tína af alla daga og hægt sé að starta einhverjum samfélagsbanka sem eigi að veita miklu betri kjör en allir aðrir á lánamarkaði, meira að segja lífeyrissjóðir sem búa nú við sérstöðu á þeim markaði — en það er auðvitað alveg galin umræða, í ljósi reynslunnar.
Við getum horft til fleiri atvinnugreina í þessu samhengi, virðulegur forseti, og horft til að mynda til sjávarútvegs. Lengi vel var sama staðan uppi í sjávarútvegi. Sjávarútvegur var að langmestu leyti, að mjög stóru leyti, í opinberri eigu. Bæjarútgerðir, félög á vegum hins opinbera sem að áttu stórfyrirtæki og stóra summan í því er að þetta var illa rekið, rekið með tapi og hér voru reglulegar gengisfellingar á kostnað skattborgaranna. Skattborgararnir, íbúar sveitarfélaganna sem stóðu í bæjarútgerðum, voru sem sagt að borga tapið af þessum fyrirtækjum. Við breyttum til, fórum yfir í kvótakerfi, heimiluðum framsal á heimildum, sem margir sjá ofsjónum yfir í dag. Á einhverjum árum átti sér stað gjörbreyting í þessu kerfi. Það átti sér stað gríðarleg hagræðing á grundvelli laganna, auðvitað sársaukafull fyrir ákveðnar byggðir en nauðsynleg fyrir samfélagið í heild. Má segja að hið opinbera hafi kannski með markmiðum sínum, sem voru augljós, ekki gætt nægilega að því að huga að öðrum fjárfestingum í öðrum atvinnugreinum og með byggðasjónarmið í huga til að mæta þessari þróun. Sjálf greiddi greinin fyrir sína hagræðingu öðruvísi en hefur verið í löndum Evrópusambandsins, svo að dæmi séu tekin, þar sem ríkið hefur greitt fyrir alla þessa hagræðingu og það á reyndar við miklu víðar en í löndum Evrópusambandsins.
Niðurstaðan í sjávarútvegi er að við rekum einhvern besta sjávarútveg sem er horft til, og við erum að horfa á að verið er að setja þá grein í ákveðið uppnám. Það gæti orðið reikningur sem þjóðin þyrfti að borga á endanum eins og hún hefur þurft að gera að mörgu leyti í hinu pólitíska samhengi, þ.e. aðgerðir og aðgerðaleysi í pólitíkinni, hvort sem er á sveitarstjórnarstigi í einhverjum tilfellum og sérstaklega kannski hér á Alþingi, hafa kostað gríðarlega mikið. Sósíalisminn hefur skapað mikið tjón fyrir íslenskt samfélag sem lendir auðvitað á skattborgurum. Orkufrekur iðnaður eða orkuöflun, nýting náttúruauðlinda okkar til orkuöflunar, er gott dæmi um þetta. Þegar farið var af stað áttuðu menn sig á því að ef við ætluðum ekki að byggja upp eitthvert eyjafyrirkomulag í raforkuframleiðslu í landinu, ætluðum að hafa eitt stórt dreifikerfi og geta byggt stórar og hagkvæmar virkjanir, þá urðum við að fá kaupendur að orkunni. Við gátum ekki tekið áhættuna af því sjálf, höfðum ekki þekkinguna og reynsluna eða fjármagnið til þess að byggja upp verksmiðjur sem gætu verið stórkaupendur allan sólarhringinn allt árið að orku. Við náðum slíkum samningum en við byggðum virkjanirnar, tryggðum greiðslurnar til þeirra í gegnum sölu á raforkunni og við vorum búin að skjóta nýrri stoð undir samfélag okkar. Það reyndist gæfuspor. Það var ekki einfalt og var mikil barátta á þeim tíma en hún vannst undir forystu Sjálfstæðisflokksins. Síðan höfum við aftur á seinni árum verið að skapa hér alveg ofboðslegt tjón fyrir íslenskt samfélag sem að skattborgararnir bera í sjálfu sér og það er þetta virkjanastopp sem hefur verið í gangi, öll þau tækifæri sem eru að fara fram hjá okkur á hverjum degi í þeim efnum, öll sú verðmætasköpun sem hefði getað átt sér stað. Það er dæmi um annan reikning sem við erum að senda með óbeinum hætti á skattborgarana og leiðir það af sér að menn eru að leita alls staðar að einhverjum skattaholum, einhverju sem þeir geta reynt að plokka af atvinnurekstri og öðrum, og umræðan fer öll í þá átt með tilheyrandi mögulegum neikvæðum afleiðingum sem koma þá fram síðar, svona annað tjón sem er sambærilegt við það að við höfum dregið lappirnar í þessum málum.
Við getum nefnt fiskeldi sem er stórkostlegt tækifæri en við hikum við. Allt öðruvísi en Færeyingar og aðrar þjóðir sem við getum borið okkur saman við — þeir eru stórþátttakendur í þessu, hafa treyst stoðir sinna samfélaga mjög á grundvelli þessarar áhugaverðu greinar — þá erum við að velta okkur upp úr því að það sé alveg ómögulegt að það sé eitthvert erlent fjármagn sem komi inn í þetta, taki af alla áhættuna; tugmilljarða fjárfestingar sem eru að eiga sér stað, sérstaklega fyrir vestan og austan og reyndar á Suðurlandi núna. Við erum voðalega upptekin af því að það geti mögulega verið eitthvert erlent eignarhald í þessu. Flestar þjóðir, ef ekki allar, nema hinar rammsósíalísku, horfa auðvitað til þess að fá sem mest af erlendu fjármagni til fjárfestinga inn í sín samfélög og láta þannig byggja upp verðmætasköpun landanna. En við erum svolítið upptekin í þessu, hikum, drögum lappirnar aftur með tilheyrandi tjóni fyrir skattgreiðendur, og reikningurinn fer á þetta. Þetta er allt í boði þeirra sem eru í pólitík á Íslandi og hafa verið á undanförnum árum.
Við getum horft með sama hætti á ferðaþjónustuna. Þar höfum við horft fram hjá því að láta ferðamannastrauminn taka þátt í uppbyggingu innviða, til að mynda eins og samgöngukerfisins, eins og flestar þjóðir sem við horfum til í Evrópu og annars staðar gera, með þeim áhrifum auðvitað að innviðir eru miklu sterkari, þjóna miklu betur samfélögunum um leið og þeir bera þann ferðamannastraum sem um þá fer. Við erum, má segja, nokkuð góðir sérfræðingar í flugi, fjárfestum mikið í kringum það. Eigum við það að þakka frumkvöðlum í þeirri grein fyrir áratugum sem byggðu upp alveg ótrúlega framsýna stefnu í flugmálum. Flugþjónusta er gríðarlega mikilvæg, hún er grunnurinn að öflugri ferðaþjónustu. En við erum engir sérstakir sérfræðingar í rekstri flugvalla á svona stórum skala en við erum samt að bisa við að fjárfesta fyrir tugi milljarða í flugstöð sem við gætum bara látið aðra sérfræðinga um, að taka þá áhættu fyrir okkur, og standa undir þeim fjárfestingum, og beint því fjármagni sem við erum með bundið þar í önnur verkefni.
Þetta er svona staðan, virðulegur forseti, sem við búum við. Það eru þannig margir beinir og óbeinir reikningar sem eru sendir á skattborgarana og við gætum verið að gera miklu betur. En eins og ég sagði þá er gott að vera vitur eftir á og það voru ákveðnar aðstæður sem kannski kölluðu á íbúðalánakerfi sem væri með einhvers konar félagslegum hætti. En ég held að menn hefðu getað horft til þess miklu fyrr að gera það með öðrum hætti enda margar leiðir til þess. Sjálfstæður rekstur nýtir skattfé almennt miklu betur en hið opinbera. Hann er miklu hagkvæmari. Þannig gætum við náð miklu meiri árangri með því að opna betur fyrir sjálfstæðan rekstur í heilbrigðiskerfinu. Reynslan af því sem þó er búið að gera er gríðarlega góð, hefur sparað mikið um leið og hún bætir þjónustuna við borgarana mikið. Við getum horft á skólakerfið sem við erum í stórkostlegum vandræðum með og endurspeglað það síðan inn í það að við myndum hleypa sjálfstæðu fjármagni og vinnuafli inn í skólana, inn í reksturinn. Það getur átt við á öllum skólastigum, og síðan í uppbyggingu innviða. Eða hefur verið eitthvert vit í því, eftir á að hyggja, að ríkið standi mikið í uppbyggingu á hjúkrunarheimilum þegar reikningarnir sýna að þeir sem eru í sjálfstæðum rekstri byggja sambærilegar fasteignir fyrir helminginn af því verði sem ríkið hefur verið að gera. Loksins er búið að breyta þessu. Það tókst á síðasta kjörtímabili, undir forystu Bjarna Benediktssonar, þáverandi fjármálaráðherra.
Það kostar samfélagið mikið að draga lappirnar í þessum efnum. Nú erum við til að mynda að horfa á það, sem afleiðingar af þessu öllu, að menn eru að horfa til þess að skattleggja enn frekar mjólkurkýrnar okkar. Við erum allt of upptekin í því að auka óvandaða skattlagningu. Hvað kallar fólk þetta? Sumir kalla þetta glataða skattstofna, það er glatað fé að hafa ekki verið með hærri skatta. Hvers konar nálgun er þetta? Þetta er sama fólkið og vill vera sem mest í þessum opinbera rekstri, vill jafnvel halda í bankana — a.m.k. hefur einn ríkisstjórnarflokkurinn talað mjög fyrir því að vera með einhverja samfélagslega banka.
En við höfum reynslu til að læra af, virðulegur forseti. Niðurstaðan er kannski alveg skýr. Við eigum ekki að vera í bankastarfsemi á ábyrgð skattborgaranna. Það er of mikil áhætta. Við eigum að horfa til aukinnar verðmætasköpunar. Það er grundvöllurinn að því að byggja upp öflugar stoðir undir traust samfélag, öflugar og fjölbreyttar stoðir. Við eigum að horfa sérstaklega til byggðasjónarmiða í þeim efnum. Við eigum að horfa til kaldra svæða þegar við erum að hvetja til fjárfestinga í verðmætasköpun, atvinnutækifærum. Við eigum jafnvel að horfa til þess að ívilna svo að menn fari í þær áttir til að treysta á fjölbreyttari byggð og skapa þannig meiri grundvöll fyrir því að styrkja innviðina. Við eigum að fagna erlendri fjárfestingu alveg sérstaklega á sviðum þar sem minni þekking og reynsla er til staðar en hjá okkur.
Virðulegi forseti. Það er tímabært að læra af mistökunum sem hafa verið gerð. Það er margt sem okkar ágæta land býður upp á (Forseti hringir.) til þess að byggja hér upp miklu sterkara og öflugra samfélag en við erum með í dag. Verðmætin verða ekki til nema tækifærin séu nýtt. Alveg eins og í sjávarútvegi, það verða engin verðmæti úr fiskinum nema það séu aðilar til að nýta hann sómasamlega.