156. löggjafarþing — 32. fundur,  29. apr. 2025.

fjáraukalög 2025.

319. mál
[18:01]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Hér er til umræðu heilmikið mál, eins og sagt er, og af óvenjulegum toga, um heimild fyrir ríkissjóð til að gefa út ríkisskuldabréf fyrir allt að 510 milljarða. Það er ekki oft sem svona mál rata hérna inn en það hafa verið fróðlegar umræður hér og menn verið að reifa þetta frá ýmsum sjónarhornum, sem er sjálfsagt að gera af því að þetta mál svo sem býður upp á umræðu um ýmislegt í tengslum við ríkisreksturinn, í tengslum við þjónustu og ríkisafskipti og pólitísk afskipti af atvinnulífi, af því að forsaga þessa máls er öðrum þræði saga ríkisafskipta, pólitískra afskipta og ístöðuleysis Alþingis þegar kemur að eftirliti með ríkisstofnunum. Ég ætlaði rétt að nefna það hér að það er auðvitað óvanalegt að málum af þessum toga fylgi svona ítarleg greinargerð. En það er einmitt tekið sérstaklega fram að þar sem þetta varðar nú verulegar fjárhæðir þá sé greinargerðin með ítarlegri hætti en almennt tíðkast. Ég verð þó að segja það að mér fyndist að greinargerð hefði mátt vera nokkuð ítarlegri. Nú hef ég fylgst eins og aðrir með þessu máli frá því að það kom upp á síðasta kjörtímabili, snemma á síðasta kjörtímabili, reyndar á kjörtímabilinu þar á undan. Þekki ég málið bæði frá tíma mínum í ríkisstjórn en líka hérna á þinginu þegar það gerðist að ríkið tók yfir sjóðinn, þetta er nú rakið hérna í greinargerðinni, sem gerðist 2019 ef ég man rétt, já, þegar ÍL-sjóðurinn varð til við uppskiptingu Íbúðalánasjóðs og fjármála- og efnahagsráðherra var falið að hafa yfirstjórn með ÍL-sjóði, hafði þá yfirumsjón með úrvinnslu og uppgjöri eigna. Þessar eignir voru á þeim tíma aðallega útlánasafn, önnur verðbréf og innlán. Ég man ekki betur en að á þessum tíma hafi hugmyndin verið sú að nota þennan ríkisbanka, sem illu heilli er nú enn þá starfræktur, Landsbankann, til þess að taka við þessum eignum og höndla með þær, að það hafi verið svona hugmyndin í upphafi. Ég hef svo sem ekki skýringu á því af hverju það varð ekki, af hverju ríkisbankinn var ekki notaður að einhverju leyti til að taka við þessum verkefnum eða við þessum eignum a.m.k. sem sjóðurinn bjó yfir þá. Það er svona hluti af sögunni og það hefði kannski mátt rekja það aðeins meira. En þróunin varð sú að þessi sjóður, ÍL-sjóður, endaði bara í skúffu í fjármálaráðuneytinu og hefur verið þar síðan og menn síðan ráku sig á að það væri kannski heppilegra einhvern veginn að slíta þessu og gera þetta allt saman upp með þeim hætti sem þetta frumvarp lýsir alveg ágætlega.

Hér hefur í ræðum ýmissa þingmanna verið fjallað nokkuð ítarlega um stöðu og ástæður þess að Íbúðalánasjóður hafi verið stofnaður 1998, en hann tók við af Húsnæðisstofnun ríkisins. Ég hef alveg samúð með sjónarmiðum landsbyggðarþingmanna sem vilja draga það fram eða rifja það upp að aðstöðumunur hafi verið á milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðisins þegar kom að lánum til íbúðakaupa. Ég vil hins vegar blanda mér örlítið í þá umræðu og gera athugasemd við þá fullyrðingu sem hefur komið hérna fram, eða menn eru bara sannfærðir um það og það er pólitíkin í þessu. Menn eru sannfærðir og voru sannfærðir um það á þeim tíma að eina leiðin til þess að þjónusta landsbyggðina væri að ríkið sæi um það. Því er haldið einmitt hérna fram að þess vegna hafi þetta nú þurft að vera svona. Ég vil hins vegar gjalda varhug við að menn festist í þessari hugsun og benda á að það er miklu fremur þannig að þessi ríkisafskipti, fyrst með Húsnæðisstofnun ríkisins og síðar Íbúðalánasjóði, hafi alveg án efa í mínum huga tafið fyrir og tafði fyrir þeirri nauðsynlegu þróun sem þurfti að verða á fjármálamarkaði, m.a. með tilliti til hagsmuna landsbyggðarinnar, tafði fyrir þessari þróun sem síðar varð þegar bankarnir ruddu sér til rúms á íbúðalánamarkaði. Þeir þurftu að gera átak í því. Það átti ekki að hleypa bönkum almennt inn á íbúðalánamarkað, hvorki á höfuðborgarsvæðinu né landsbyggðinni, en það gerðu bankarnir og þeir hefðu þurft að fá frið til að gera það miklu fyrr. Menn hefðu átt að treysta einkaframtakinu og fjármálafyrirtækjunum og menn hefðu, ríkisvaldið, Alþingi auðvitað þar á meðal, átt að byggja undir grundvöll að frjálsum markaði á fjármálamarkaði miklu fyrr en gert var. Þetta gerðist í þessum skrefum og eftirhreyturnar voru þessi Húsnæðisstofnun og Íbúðalánasjóður sem síðan þóttist vera í einhverri félagslegri velgjörð gagnvart landsbyggðinni, sem síðan ekki auðvitað varð. Ég vil halda þessu til haga í þessu sambandi, að menn gleymi því ekki þegar menn fullyrða um að eitthvað hafi verið nauðsynlegt, að það er ekki alveg hægt að fullyrða án þess að velta því fyrir sér hvað hefði orðið ef þetta hefði ekki verið svona. Hefði þróunin ekki einmitt verið jákvæðari og betri miklu fyrr?

Það er lærdómurinn sem mér finnst að menn þurfi aðeins að draga af þessu máli öllu saman vegna þess að þetta er auðvitað hrein sorgarsaga, saga Íbúðalánasjóðs, og hvernig menn beittu sér í þessu og voru sannfærðir um að það þyrfti að vera til samfélagsbanki hér og sjóðurinn fjármagnaður með lánum, erlendum lánum og alls kyns lánum sem menn gátu ekki staðið undir en lánuðu síðan út með hagstæðari kjörum heldur en sjóðurinn sjálfur bar ábyrgð á gagnvart sínum kröfuhöfum. Þetta er lærdómurinn sem menn verða að draga af þessu máli. Enn þann dag í dag tala menn fjálglega um það að bankarnir séu svíðingar gagnvart almenningi, þeir séu með of háa vexti og þeir séu að græða svo mikið. Enn þann dag í dag gleyma menn að líta til fjármögnunar bankanna í dag og hvaða kröfur og hvaða kjör bönkunum standa til boða til að geta fleytt áfram neytendalánum, lánum til einstaklinga og fyrirtækja. Þetta verður auðvitað allt að skoða í samhengi. Það er með ólíkindum að rifja upp þessa sögu hérna og að Alþingi hafi staðið hér á þessum árum algerlega bláeygt gagnvart þróuninni og staðið við sama heygarðshornið, viljað halda til haga og trúað því, þingmenn margir hverjir, alls ekki allir, það voru margir sem voru framsýnir og sáu að þetta gat ekki gengið, en margir bara neituðu að horfast í augu við það að það er ekki hægt að gefa peninga annarra. Það kemur að skuldadögum. Þetta þurfa menn að hafa í huga í framtíðinni.

Mér finnst líka að í þessari greinargerð hefði mátt hafa — ég vil nefna það, virðulegur forseti, að þessi mál hafa verið í umfjöllun núna í mörg ár. Það hafa verið skrifaðar skýrslur og það er vísað hér til samninganefndar af hálfu ríkisins og lífeyrissjóðanna, lífeyrissjóðanna sem eru helstu kröfuhafarnir, um hvernig hægt er að koma þessu í einhvern farveg. Það hefði mátt að ósekju í þessari greinargerð vísa til allra þessara skjala þannig að menn nái einhvern veginn utan um aðdragandann að þessu frumvarpi, fyrir utan sögulegu þróunina, það sem hefur gerst núna nær okkur í tíma. Ég held að það væri a.m.k. skynsamlegt að nefndin myndi safna því öllu saman þannig að bæði sögulega en líka í meðferð, þinglegri meðferð, þá liggi það allt saman fyrir.

Eitt af því t.d. sem er nær okkur í tíma er hér nefnt í athugasemdum með frumvarpinu. Þar er rifjað upp að árið 2022 hafi ÍL-sjóðurinn veitt ríkissjóði 190 milljarða kr. lán vegna útgjalda tengdra Covid-faraldrinum, sem orkaði tvímælis að mínu mati á þeim tíma. Hér er það fullyrt að íslenska ríkið hafi greitt ÍL-sjóði vexti sem voru ákveðnir miðað við verðtryggð fjármögnunarkjör ríkissjóðs á markaði á sama tíma.

Ég verð að segja, virðulegur forseti, að það eru margir sem hafa efast um að þessi fullyrðing standist, að ríkissjóður hefði getað fengið sambærilegt lán á þessum kjörum, þessa fjárhæð sem ríkissjóður ákvað að taka úr ÍL-sjóði árið 2022. Hér er í öllu falli ekki gerð nein frekari grein fyrir þessu. Hér er þetta bara fullyrt, að kjörin hafi verið sambærileg við það sem ríkinu hefði boðist á þessum tíma. Það hefði verið fróðlegt, þótt ekki væri nema fyrir söguna og lærdóminn sem menn þurfa að draga af lántökum ríkisins, að gera aðeins betri grein fyrir þessu.

Svo verð ég að segja það líka að ég hef fylgst nokkuð náið með öllum þessum viðræðum og þessu máli þótt ég hafi ekki setið á þingi síðasta kjörtímabilið. En alltaf þegar ég kem að þessu máli þarf ég einhvern veginn að rifja aftur upp ýmsa þætti í þessu og það er ekki nema fyrir kannski nokkuð vel lærða að átta sig alveg á tölunum og uppgjörunum í þessu öllu saman. Hérna vísa ég sérstaklega til kafla sem heitir Skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra til Alþingis í október 2002 þar sem fjallað er um það af hverju þessi leið er talin vænlegust en ekki t.d. sú leið eða sú sviðsmynd að gera ekki neitt og láta ÍL-sjóð greiða til ársins 2034 afborganir af þessum skuldum svo lengi sem eignirnar duga til en að ríkissjóður myndi þá hlaupa undir bagga árið 2034. Mér finnst að það hefði mátt gera ítarlegri grein fyrir þessu svona nokkurn veginn á mannamáli í athugasemdum. Ég dreg ekkert í efa hins vegar að þessi leið sé hagkvæm fyrir ríkissjóð, sýnist mér og að virtum fullyrðingum þeirra sem eru lærðari í þessum reikningum heldur en ég.

Ég fagna því líka að hagsmunum lífeyrissjóðanna hafi verið haldið á lofti eða haldið til haga hér vegna þess að mér fannst menn tala ansi kannski galgopalega og gáleysislega um lífeyrissjóðina í þessum efnum og gleyma því að þeir eru auðvitað að höndla með fé borgaranna. Þessir lífeyrissjóðir sem um ræðir í þessu máli njóta engrar ríkisábyrgðar eins og Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins sem hefði ekki borið neinn skarðan hlut frá borði ef það hefði átt að svína á lífeyrissjóðunum, eins og mér fannst menn hafa í hyggju að gera í upphafi.

Allt að einu þá held ég að þetta mál sé umfram allt og eigi að vera lærdómur fyrir stjórnmálamenn í dag og til framtíðar og menn verða að þora að horfast í augu við þau stjórnmálalegu mistök, (Forseti hringir.) pólitísku mistök sem voru gerð hér í upphafi þessarar aldar.