fjáraukalög 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Hv. þingmaður er hér að vísa til nokkurra þátta og bendir á hið augljósa, þ.e. að við þurfum að ræða ákveðna hluti, fara djúpt ofan í hluti í hv. þingnefnd. Og hv. þingmaður bendir á að það er augljóst, það er alla vega mín skoðun, að það væri best, þegar menn fara í gegnum málið og lesa frumvarpið, að þingheimur geti útskýrt þær leiðir sem hv. þingmaður var hér að vísa til úr greinargerðinni, af hverju menn væru að fara þessa leið. Auðvitað er þetta óvissu háð en ég held að það sé mjög mikilvægt, og ég held að þingheimur skuldi þjóðinni það, að ganga þannig frá málinu að allir skilji að við séum þarna að taka réttustu ákvörðunina í erfiðri stöðu.
Ég vil hins vegar, af því að hv. þingmaður hefur mikla reynslu af þingstörfum og stjórnmálaþátttöku, spyrja hv. þingmann hvort hún sé sammála mér í því — eitt er að taka á þessum málum núna, sem er bara sérmál, og vanda sig eins vel og hægt er. Síðan er hitt og það er að koma í veg fyrir að svona mistök gerist aftur. Ég er þeirrar skoðunar að við séum með skipulegum hætti að færa ábyrgðina frá kjörnum fulltrúum og þar af leiðandi aðgang almennings að ábyrgð, getum við sagt, með mjög skipulegum hætti. Ég er að vísa til þessara svokölluðu faglegu aðgerða til að skipa stjórnir. Við höfum séð á sveitarstjórnarstiginu, og blöndu sveitarstjórnarstigsins og ríkisins — ég horfi t.d. á Betri samgöngur sem er allt í einu orðið eignaumsýslufyrirtæki sem veltir milljörðum og á að leggja upp ákvarðanir sem varða alla, og síðasti verðmiðinn var 300 milljarðar. (Forseti hringir.) Ég ætla bara að spyrja hv. þingmann: Hvaða skoðun hefur hv. þingmaður á þessu? Telur hv. þingmaður að við séum að stíga skref í rétta átt með því að færa þetta frá lýðræðislegum stofnunum?