fjáraukalög 2025.
Virðulegur forseti. Já, öll þessi fyrirtæki sem hv. þingmaður nefndi væri tilvalið einmitt að leggja niður og færa til einkaaðila eða leggja verkefnin niður. Ef þetta er eitthvert ríkisfyrirtæki þá ber auðvitað ráðherra endanlega pólitíska ábyrgð á rekstri sinna undirstofnana. Í mínum huga er það þannig. (Gripið fram í.) Hvað sveitarfélögin varðar þá eru það sveitarfélögin sjálf sem þurfa að bera ábyrgðina. Auðvitað ráða menn einhverja forstjóra og þeir bera líka ábyrgð og það þarf að sýna það. Menn sýna ábyrgðina og menn axla ábyrgð, stjórnmálamenn og aðrir, einmitt með því að láta forstjórann eða þá sem eru að reka stofnunina fara, menn axla þannig ábyrgð. Menn skipta um skipstjóra í brúnni ef ekki fiskast vel eða ef mistök eru gerð, þá verður að gera það, og það er sú pólitíska ábyrgð sem menn verða að þora að axla, taka afstöðu til reksturs fyrirtækisins eða stofnunarinnar.
Mér dettur nú í hug í þessu sambandi að ég las áhugavert svar hæstv. fjármálaráðherra til hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur sem birtist í gær um nákvæmlega eina af þessum forneskjulegu stofnunum, fyrirtækjum, Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins. Það er mjög áhugavert svar frá hæstv. fjármálaráðherra þar sem hann er spurður um hvað hann ætli að gera í viðvarandi lögbroti sem ÁTVR hefur uppi þessi dægrin og síðasta hálfa árið gagnvart einum borgara, einu fyrirtæki hérna í landinu sem hefur fengið dóm um lögbrotið. Svar hæstv. fjármálaráðherra er alveg skýrt: Ég hef enga aðkomu að fyrirtækinu. Ég ætla ekki að bera ábyrgð á þessu fyrirtæki. Þetta er auðvitað ekki boðlegt. Þetta er alls ekki boðlegt. Menn verða að axla ábyrgð og grípa í taumana þegar ríkisfyrirtæki eða stofnanir fara út af sporinu.