fjáraukalög 2025.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir gott andsvar og það er áhugavert í þessu samhengi að tala um liðna tíma. Ég kom inn á í mínu fyrra andsvari það sem sneri að markaðsbresti og vissulega viljum við að flestir, ef ekki allir, hafi tækifæri til að eiga eigið þak yfir sínu höfði. En það er einu sinni þannig að þó svo að við séum með mjög viljugt bankakerfi til útlána þá eru sum svæði á landinu því marki brennd að það er viðvarandi markaðsbrestur og þar er í sjálfu sér eiginlega ekki hægt að fá lán. En það er svo sem útúrdúr frá því sem ég ætlaði að koma inn á hérna. En aftur á móti er það þannig að það eru aðstæður sem lagt var upp með í upphafi og síðan gerast ákveðnir atburðir þar rétt á eftir, þ.e. einkavæðing bankanna og við tökum ákveðin skref þarna, einkavæðingin er 2002 og síðan förum við af stað í, eins og við þekkjum, ákveðna leið og úrvalsvísitalan rauk upp úr öllu valdi o.s.frv. En það sem er áhugavert í þessu er þegar lántakendur hjá Íbúðalánasjóði fara í það að greiða upp lán, þ.e. endurfjármagna, þá hefst vandinn fyrst fyrir alvöru vegna þess að það var ekki þannig búið um hnútana í upphafi að lántakandinn og lánveitandinn, þ.e. Íbúðalánasjóður sem lánveitandi og þar sem þeir fjármögnuðu sig — þar var ekki ákvæði vegna uppgreiðslu á lánum.