fjáraukalög 2025.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir hennar ræðu og ég tek undir með því sem kom fram í hennar máli og deili með henni þeirri sannfæringu að þegar menn lögðu af stað í þetta ferli á sínum tíma þá var það af góðum hug. Þar með er samsvörum lokið.
Íbúðalánasjóður lék algjört lykilhlutverk á íslenskum lánamarkaði, ekki hvað síst á landsbyggðinni, og var í eðli sínu samfélagsbanki, hugtak sem hv. þingmanni hefur orðið nokkuð tamt á tungu hér í ræðustóli og ýjað að því að slíkt megi aldrei gerast aftur. Ég hins vegar vék að því fyrr í dag í ræðu minni að ef hinn frjálsi markaður, hinn einkarekni lánamarkaður gætir ekki fulls jafnræðis, hvort sem það er á milli ólíkra landsvæða eftir því hvernig hagsveiflur í landsvæðunum sveiflast milli ára eða áratuga eða annað, þá getur einmitt vel komið upp sú staða sem hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir óttast mjög, að aftur verði til þrýstingur, sem hugsanlega er nú þegar kominn og þar vitnaði hv. þingmaður í orðræðu hv. þingmanna Flokks fólksins. En þá getur slíkt einmitt vel komið upp aftur því ég hef þá trú að einkageirinn, hinn frjálsi markaður þurfi þetta ákveðna aðhald frá hinu opinbera, að ef hann ekki standi sig, ef hann gæti ekki jafnræðis, þá gæti hinn opinberi aðili þurft að stíga inn. Á þessum forsendum var þetta m.a. gert síðast, vegna þess að það voru ekki aðrir möguleikar í stöðunni. Svo ég spyr hv. þingmann: Hvernig er best að tryggja það að einkageirinn gæti jafnræðis? (Forseti hringir.) Hver er lausnin? Hver er töfralausnin?