156. löggjafarþing — 32. fundur,  29. apr. 2025.

fjáraukalög 2025.

319. mál
[18:51]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og hann skilur bara eftir hérna örlitla spurningu fyrir mig til að svara á tveimur mínútum. En það er alveg ljóst af þessari orðræðu að ég og hv. þingmaður erum ekki í sama flokki og deilum ekki algerlega hugmyndafræði þó að við getum verið sammála um ýmislegt.

Já, gert af góðum hug. Ég aðhyllist ekki kenningar um samfélagsbanka, ekki ef það er á kostnað skattgreiðenda, en ég held að ég deili þeirri sýn algjörlega með hv. þingmanni að mér finnst mjög mikilvægt að það sé byggð um land allt. Mér finnst mjög mikilvægt að fólk geti keypt fasteignir um land allt og fólk geti þá tekið íbúðalán á eðlilegum kjörum og með veði í þeirri fasteign. Ég átta mig alveg á því sem hv. þingmaður er að fara hér, að það hefur verið markaðsbrestur, það er það og maður heyrir enn ótrúlegar sögur hvað það varðar að bankar séu ekki að virða mat fasteigna úti á landi sem veð og það er ekki gott. Hver nákvæmlega lausnin er á því — ég held að hún sé ekki sú sem við fórum á sínum tíma með Íbúðalánasjóði. En ég nefnilega spurði hér áðan um Menntasjóðinn eða gamla forvera hans og þau lán. Það getur alveg verið eðlilegt að ríkið bregðist einhvern tímann við þegar uppi eru markaðsbrestir með einhvers konar aðstoð í slíku, alveg eins og Byggðastofnun hefur verið að gera varðandi lán til fyrirtækja úti á landi og svona. Þannig að ég held að ég og hv. þingmaður, þótt við deilum ekki alveg allri hugmyndafræði, gætum komist að niðurstöðu um það. En ég held að þessi vegferð sem hér var farin, þó svo að hún hafi verið farin af góðum hug, sýni að hún getur verið skattgreiðendum býsna dýr. — Já, ég klára í næsta andsvari.