156. löggjafarþing — 32. fundur,  29. apr. 2025.

fjáraukalög 2025.

319. mál
[18:53]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Hefjast þá samsvör að nýju. (Gripið fram í.) Þau svör sem hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir veitti við þessum vangaveltum mínum voru talsvert mikið róandi og heyri ég að það er kannski ekki svo langt á milli á, enda var ég hér í andsvari mínu ekki að hvetja til þess við byrjuðum aftur og hæfum aftur þennan leik heldur miklu frekar að minna á í sögulegu samhengi hvað það var sem ýtti verkefninu úr vör á sínum tíma. Þetta er eitthvað sem ég held að enginn, nema kannski hugsanlega Flokkur fólksins, óski þess að fari af stað aftur í einhvers lags mynd sem okkur birtist á þessum tíma. Ég vona auðvitað ásamt hv. þingmanni að markaðurinn bara standi sig en geri hann það ekki — og það var það sem fólst í minni nálgun, því að það er alveg raunhæft. Það er ekki þannig að samfélagsleg verkefni, samfélagsbankar eða samvinnuhugsjónin eða hvaða hugtök hafa verið notuð við þetta, hafi sýnt í sögulegu samhengi eitthvað verri niðurstöðu heldur en, hvað á maður að segja, hið allra ysta hægri sem á sínum tíma var held ég nefnt nýfrjálshyggja og er svona hugtak yfir mjög eftirlitslítinn markað. Það er eins og kom fram í máli mínu í dag og líka í samskiptum mínum við hv. þingmann — nú er ég búinn að rugla saman, herra forseti, við hvaða þingmenn ég er búinn að tala — hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson held ég að það hafi verið, að þetta getur komið upp. Þessi staða getur komið upp og þá þarf að vera til einhver hugmyndafræði, hvað þá? Og svo ég klári á rauðu, herra forseti, þá var það kannski ekki hugmyndafræðin sem brást heldur eftirlitið.