fjáraukalög 2025.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur andsvarið og ítreka það sem ég sagði einmitt undir lok ræðunnar, að það sem er hlutverk hins opinbera er reglusetningin og eftirlitið. Ef það er í lagi held ég að markaðurinn geti almennt staðið sig mjög vel í þessu. En ég deili því sjónarmiði með hv. þingmanni að það kunna að vera einhvers staðar markaðsbrestir og þá er í lagi að ríkið beiti sér, afmarkað, í slíkum málum. (Gripið fram í.) Spurningin er með hvaða hætti. Alls ekki með samfélagsbanka eða samfélagshugsjónina að leiðarljósi. (Gripið fram í: Samvinnuhugsjón.)Samvinnuhugsjón, ég get ekki einu sinni sagt þetta rétt. Þetta er mér svo ótamt, kapítalistanum sem hér stendur.
Að öllu gamni slepptu, virðulegi forseti, þá bara ítreka ég það sem ég sagði áðan: Þetta er mál sem við eigum að draga lærdóm af. Margt gekk vel, annað gekk síður og nú borgum við brúsann. Við borgum fyrir þær ákvarðanir sem voru teknar hér á undan okkur en það er líka vert að hafa í huga að hér gekk gott eitt til. Stóra umræðan sem ég var að varpa ljósi á, og auðvitað skýrir hvaðan ég kem í pólitík, er að það getur stundum verið alveg svakalega hættulegt þegar hið opinbera ætlar að bjarga öllu. Það getur verið mjög hættulegt þegar pólitíkusar ætla að stíga inn á svið og bjarga málunum. Ef markaðurinn getur gert það fer betur á því að við einblínum hér á regluverkið og eftirlit með því og látum markaðnum annað eftir. Og sem betur fer, virðulegur forseti, sem betur fer erum við að horfa á miklu heilbrigðari lánamarkað á Íslandi í dag en við vorum þegar þessi vegferð hófst.