fjáraukalög 2025.
Virðulegi forseti. Ég vil nota tækifærið og þakka fyrir þessar góðu umræður hér sem ég held að séu bara góðar fyrir alla. Ég verð hins vegar aðeins að blanda mér inn í þetta vegna þess að ég hlustaði á orðaskipti hv. þingmanna. Ef menn skoða rannsóknarskýrsluna sem var gerð 2012 þá segir í einni samantektinni:
„Uppgreiðslurnar hófust þegar KB-banki hóf að veita íbúðaveðlán 23. ágúst 2004“, þ.e. þá byrjuðu menn að fara í uppgreiðslurnar á Íbúðalánasjóði. Hvað átti Íbúðalánasjóður að gera þegar aðrir lánuðu hagstæð lán? Hvert var grunnmarkmið ÍLS? Sjóðurinn hefði átt „að halda sig til hlés og einbeita sér að því að lágmarka eigið tap. […] Íbúðalánasjóður gerði það ekki heldur fór í samkeppni við bankana og reyndi að“ lána sem allra mest.
Þetta snerist ekki um það að Íbúðalánasjóður væri að lána einhvers staðar þar sem enginn annar vildi lána. Ríkið ákvað með samfélagsbankanum sínum að viðhalda markaðsstöðu sinni og því fór sem fór. Svo hætta menn aldrei og virðast vera nokkuð eftirlitslausir, munaðarlausir og auðvitað voru þarna ráðherrar sem hefðu nú átt að að grípa inn í. En síðan var farið í æfingar með það að fjármagna leigufélög og á því tapaði sjóðurinn mest og sömuleiðis að lána verktökum og öðrum aðilum þannig að vond staða varð bara verri og verri.
Niðurstaðan hlýtur að vera sú að ríkið á að fara mjög varlega í rekstur sem þennan. Ef við erum að tala um eitthvað sérstakt — því að ég og nokkrir hv. þingmenn hér vorum að ræða afmörkuð mál eins og t.d. það ef þú ert með ákveðin svæði á landinu, og þetta er alveg raunverulegt dæmi, þar sem þú ert einhverra hluta vegna ekki með lánastofnun á markaði sem er tilbúin til þess að sinna þeirri þjónustu, þá geturðu nálgast það með afmörkuðum hætti. Eftir því sem ég best veit er það gert t.d. í gegnum Byggðastofnun. En Byggðastofnun er ekki að reyna að viðhalda, eftir því sem ég best veit, ég vona ekki, markaðsstöðu sinni í útlánum. Ef við gæfum okkur það, sem ég veit ekki hvort gerist, að nú kæmu hér aðilar inn sem myndu vilja endurlána þeim aðilum sem eru með lán hjá Byggðastofnun á hagstæðari kjörum, þá er það bara mjög gott. Þá hlýtur Byggðastofnun að draga sig til baka og fara að sinna einhverjum öðrum verkefnum því að þá hefur sá markaðsbrestur leyst.
Ég tel að við ættum að fara vel yfir þetta mál af því að við verðum að tryggja að við séum örugglega að fara hagkvæmustu leiðina fyrir skattgreiðendur, það skiptir auðvitað öllu máli því að hér erum við að taka ákvarðanir sem skipta máli. Það skiptir mjög miklu máli að hv. fjárlaganefnd sé ekki sett í neina spennitreyju þegar kemur að tímasetningum heldur hafi hún nægan tíma til að sinna þessu verkefni, fái alla þá aðstoð, öll þau sjónarmið sem mögulegt er til að við getum lágmarkað þann kostnað sem augljóslega verður.
Nú vil ég bara setja þetta í samhengi: Þessi samfélagsbankaæfing, það kemur ekki fram hver endanleg niðurstaða er í tapinu. Við erum að tala um, vonandi ekki hundruð milljarða, en jú, það gæti alveg farið þannig. Það er bara svolítið erfitt að átta sig á því hvað nákvæmlega við erum að tala um í því samhengi og væri áhugavert að ráðherra mæti það kannski hvað hann telur að þetta sé há upphæð. Og þegar við erum alltaf að skrapa saman krónum og aurum í allra handa hluti, m.a. á landsbyggðinni, líka annars staðar, í samgöngur og alla innviðauppbyggingu, þá held ég að okkur liði nú betur ef við gætum nýtt þá fjármuni sem fara í þetta í nákvæmlega slíka hluti.
Það verður áhugavert að taka á þessu máli í hv. fjárlaganefnd og ég vona að við fáum góðan tíma til þess því að það er mjög mikilvægt að vanda til verka.