156. löggjafarþing — 32. fundur,  29. apr. 2025.

fjáraukalög 2025.

319. mál
[19:04]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Virðulegi forseti. Mig langar að koma upp í minni seinni ræðu og velta aðeins þessu hugtaki upp sem við höfum verið að blanda hér saman sem snýr að þessari samfélagsbankaumræðu. Ég veit ekki alveg hvort við séum á réttri leið hvað það varðar að fjalla um Íbúðalánasjóð sem samfélagsbanka. Í tengslum við það þá fór ég að reyna að leita skýringa á því á Vísindavefnum hvað væri samfélagsbanki og ég met það sem svo að Íbúðalánasjóður hafi bara verið sjóður á hendi ríkisins til útlána en ekki stundað hefðbundna bankastarfsemi í þeim skilningi, miðað við það hvernig samfélagsbanki er skilgreindur í því tilliti. En við getum svo sem deilt um það endalaust. En það er áhugavert að fletta í gegnum þá sögu, þ.e. í fjármálastarfsemi sem hefur verið frá 1904 þegar fyrsti einkabankinn í sjálfu sér var stofnaður, þ.e. Íslandsbanki hinn fyrsti. Þar á undan höfðum við verið með samfélagsbanka starfandi og við tengjum það nú ansi mikið við sparisjóðakerfið hvað það varðar sömuleiðis. Síðan hafa þessir samfélagsbankar verið, eins og maður segir, undir stjórn hins opinbera en svo sem ekki þessi krafa hvað varðar arðgreiðslur.

Ég vildi bara koma þessu að, virðulegur forseti, í þessari umræðu. Ég held varðandi hina ágætu hugmynd um samfélagsbanka að vinir mínir í Sjálfstæðisflokknum verði nú seint hrifnir af því að ganga til liðs við okkur sem höfum svo sem talað fyrir þeirri hugmynd undanfarin ár. Ég vildi koma því að.

Þetta sem snýr að samfélagsbanka, við þekkjum alveg hvernig það virkar hingað og þangað um heiminn. Það er t.d. þekktur breskur banki, Nationwide, í Bretlandi sem er rekinn á þessum grunni og síðan eru svo sem fleiri bankar, við getum t.d. horft til Þýskalands og fleiri landa í því efni.

En það breytir því ekki að við erum í þessari umræðu hér um það uppgjör sem snýr að ÍL-sjóði, Íbúðalánasjóði hinum fyrra og mér finnst umræðan, verð ég að segja, þó að hún hafi tekið sinn tíma, hafa verið ansi mikið á dýptina. Ég held að það sé af hinu góða hvað það varðar að þingmenn leggist töluvert yfir þetta og að við reynum síðan að læra af þeirri reynslu sem við tökum með okkur út úr þessari umræðu sem hér er. Ef við sæjum alltaf fyrir það sem gerist í framtíðinni væri ekki neitt sérstaklega gaman að lifa. Það er hluti af hinu pólitíska litrófi að við höfum öll mismunandi skoðanir á milli flokka og allar skoðanir eru góðra gjalda verðar. En við megum samt ekki gleyma því að til þess að hafa þroskaða umræðu þá þurfum við að hafa þroska til að skiptast á skoðunum. Og ég sakna þess í þessari umræðu, virðulegi forseti, að stjórnarliðar hafi ekki tekið meiri þátt í henni vegna þess að hún hefur jú verið borin uppi af Sjálfstæðisflokki, Miðflokki og Framsóknarflokki og svo sem ákveðin skoðanamunur komið fram bæði á milli flokka og einstaklinga. Það væri mjög fróðlegt í svona stóru og veigamiklu máli að við tækjum inn fleiri sjónarmið og skoðanir varðandi alla þessa þætti. Það kom fram í umræðu hér (Forseti hringir.) áðan í góðri ræðu hjá Bryndísi Haraldsdóttur varðandi áhuga Flokks fólksins á samfélagsbanka o.s.frv.

Virðulegi forseti. Ég held að ég hafi lokið máli mínu í þetta skipti.