fjáraukalög 2025.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir hans ræðu hér. Ég verð nú að segja að ég er ekki sammála hv. þingmanni í dálæti hans á samfélagsbönkum. Ég hefði nú haldið að ef við horfum á söguna — nú erum við hér að ræða akkúrat núna afdrif einnar samfélagsbankatilraunarinnar. Við höfum séð fleiri dæmi þess eins og Sambandið og fleira þar sem við erum með einhvers konar rekstrarfyrirkomulag þar sem er fé án hirðis, þar sem það er mjög óskilgreint og við erum með starfsmenn og stjórnir sem eru að eyða annarra manna fé og bera takmarkaða eða litla ábyrgð á því hvernig það fer. Þess vegna langaði mig að spyrja hv. þingmann í ljósi sögunnar og af hverju við stöndum akkúrat hér í dag, hvort hann sé enn þá sannfærður um það að samfélagsbanki sé í rauninni rekstrarform og sú lausn sem eigi að vera í boði hér í dag. Ég átta mig alveg á því sem landsbyggðarmaður að menn tala um lánamöguleika t.d. landsbyggðarinnar versus höfuðborgarsvæðið og sum svæði eru kaldari gagnvart lánum heldur en önnur en það réttlætir ekki að hafa heilan banka undir í þeim efnum að mínu mati. Ég spyr því hv. þingmann hvort hann telji ekki í rauninni að þessari félagslegu tilraun sé lokið.