156. löggjafarþing — 32. fundur,  29. apr. 2025.

fjáraukalög 2025.

319. mál
[19:11]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir gott andsvar. Ef hv. þingmaður hefði nú lagt vel við hlustir í minni ræðu hér áðan þá hefði hann vissulega tekið eftir því að ég gerði mikinn greinarmun á því hvort við værum að fjalla um samfélagsbanka annars vegar og síðan hins vegar ÍL-sjóð. Ég held að ef við horfum á ÍL-sjóð í því samhengi þá sé það tilraun sem mistókst. Það er alveg hárrétt. En umræðan um samfélagsbanka er bara allt önnur.

Ég er á þeirri skoðun að samvinnuhreyfingin — og af því að hv. þingmaður minntist á hvernig fór fyrir Sambandinu þá held ég að hugmyndafræðin sé að mörgu leyti góð. Ég hef verið stuðningsmaður hennar alveg hreint mjög þétt. En það er aftur á móti þannig að mannanna verk spila alltaf þarna inn í og við höfum bara mjög góð dæmi hér á landi varðandi hin ýmsu samvinnufélög. T.d. í okkar kjördæmi, Norðausturkjördæmi, eru samvinnufélög sem blómstra og norður í Skagafirði og hér á Suðurlandi sömuleiðis. Þannig að hugmyndafræðin er að mörgu leyti góð en það þarf alltaf að vera styrk stjórn yfir því hvernig farið er með fé.

En við erum að fjalla hér um ÍL-sjóð í þessu samhengi sem að mínu viti skilgreinist ekki sem samfélagsbanki, bara alls ekki. Þetta er einungis sjóður, lánasjóður sem ríkið setti á fót og sú tilraun sem lagt var af stað með þá mistókst, ég held að við getum öll verið sammála um það, og það eru margar ástæður fyrir því að hún mistókst.