fjáraukalög 2025.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið en ég verð að segja að svar hans sannfærði mig ekki. Hér tala menn um ja, fallegar hugsjónir. Mannkynssagan er nú skráð með mörgum fallegum hugsjónum sem hafa ekki gengið upp og trónir þar sósíalisminn, held ég, efst á toppnum yfir þá eymd sem hefur verið kölluð mannkynið. En við erum ekki að ræða hann hér.
Hv. þingmaður nefnir hér þrjú bara ágætisdæmi um samvinnufélög sem eru vel rekin. En þar veldur hver á heldur og í því tilfelli er það styrk og sterk stjórn, akkúrat þar. En það eru líka bara örfá og ein síðustu dæmin um akkúrat þetta rekstrarform. Þannig að ég velti því fyrir mér, þrátt fyrir að menn geti bent á eitt og eitt dæmi, varðandi það að ætla að fara út í vegferð eins og samfélagsbanka þar sem „víla“ með peninga fólks, stjórnendur og stjórnir sem hafa enga ábyrgð gagnvart því, bera enga ábyrgð. Þetta er fé án hirðis. Þetta er svolítið eins og með stjórnmálamennina, að við erum að eyða annarra manna fé. Ég bara velti því fyrir mér: Telur hv. þingmaður að markaðurinn geti í rauninni ekki sinnt því sem hann telur að samfélagsbanki væri að sinna og hvort það væri í rauninni ekki nóg að láta markaðinn um að sinna þessum verkefnum frekar en að vera að setja á stofn samfélagsbanka sem við gætum svo endað hér með, þingheimur, að ræða um hvernig þurfi að leysa út.