156. löggjafarþing — 32. fundur,  29. apr. 2025.

fjáraukalög 2025.

319. mál
[19:16]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir sitt seinna andsvar. Ég er nú á þeirri skoðun að hin blandaða leið, hvort sem það er einkaframtakið eða samfélagsleg hugsun, eigi bara vel við vegna þess að það hefur komið vel fram í umræðunni í dag, og í gærkvöldi sömuleiðis, að samfélagslegi hluturinn getur yfirleitt tekið á því þegar það er markaðsbrestur. En við megum heldur ekki gleyma því að samfélagsbanki þarf ekki endilega að vera í eigu hins opinbera. Það eru til samfélagsbankar sem eru bara í almenningseigu og þjóna sínum tilgangi og það hefur gengið nokkuð prýðilega. Við höfum reynslu af því, Framsóknarmenn og Sjálfstæðismenn, að við höfum svo sem náð ágætum árangri saman á mörgum vígstöðvunum. Þegar hugsjónir einkaframtaksins og samvinnuhreyfingarinnar taka saman höndum þá er það nú yfirleitt þannig að það leiðir eitthvað gott af sér í hvert skipti.

En í grunninn, virðulegi forseti, þá þurfum við að hafa það í huga að við skulum ekki vera að blanda þessum hugtökum saman, hvort sem það er samfélagsbanki eða síðan þetta sorglega mál sem snýr að ÍL-sjóði, því að í mínum huga var ÍL-sjóður ekki samfélagsbanki, bara langt því frá og hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra kom ágætlega inn á það í sinni ræðu hér í gær. Þannig að við skulum bara staldra þar við og leggja samfélagsbankaumræðuna til hliðar.