fjáraukalög 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir sitt innlegg og andsvar hér í umræðunni og fyrir góðar spurningar. Hvað var Íbúðalánasjóður annað en samfélagsbanki? Það er spurningin. Hann er í sjálfu sér ekkert annað í huga hv. þingmanns og þar greinir okkur einfaldlega á. Á Vísindavefnum er hægt að fletta upp ágætri skilgreiningu á samfélagsbanka og þar er farið ágætlega yfir þetta. Hv. þm. Jens Garðar Helgason kom líka ágætlega inn á það í andsvari sínu sem ég tel að hafi verið stóra vandamálið í þessu. Þeir aðilar sem voru að koma þessu af stað sáu ekki fyrir það sem myndi gerast á næstu árum. En í stóra samhenginu þá er það nú þannig að þegar þú fjarlægist ábyrgðina á því sem þú ert að gera — eins og þegar sparisjóðirnir voru á sínum tíma stofnaðir hingað og þangað um landið sem voru í sjálfu sér lítið annað en samfélagsbankar; þar voru inneignir þeirra sem áttu fjárhæðir geymdar og síðan var hægt að lána fjármuni út í staðinn. Í þessu tilliti er það ríkissjóður sem fjármagnar þetta og afhendir þá Íbúðalánasjóði fjármuni til frekari útlána með vissum skilyrðum. Ég held að stóra vandamálið í því hvernig fór sé það að þegar samkeppnin jókst á bankamarkaði(Forseti hringir.) hér heima og uppgreiðsla kom til þá hafi Íbúðalánasjóður ekki verið tilbúinn til að takast á við breyttar aðstæður.