fjáraukalög 2025.
Herra forseti. Við erum að ræða hérna allsérstakt mál. Þó að nafnið á því sé ekki spennandi, frumvarp til fjáraukalaga, þá á þetta mál sér rætur langt aftur í tímann, allt aftur til 2004, ef ég skil greinargerðina með þessu frumvarpi rétt. Það á sér langa sögu, og eiginlega hálfgerða sorgarsögu, og lýsir kannski best að mínu mati, herra forseti, raunverulega afleiðingu þess þegar stjórnmálamenn ganga fram með loforð til kjósenda í einhvers konar kapphlaupi hver við annan, eins og við sjáum oft í aðdraganda kosninga, og lofa einhverju sem hljómar afskaplega vel. En síðan er þetta loforð efnt með einhvers konar hræðilegum afleiðingum í atburðarás sem kannski enginn sá fyrir, sem verður til þess að gífurlegur kostnaður fellur á ríkið. Og þetta er dæmi um það. Þarna eru engar smáupphæðir undir heldur a.m.k. 510 milljarðar, ef ég skil greinargerðina rétt, eða nálægt því, sem ríkið hefur gengist í ábyrgð fyrir og þarf að að gera upp með þessu frumvarpi. Þarna er verið að gefa nauðsynlegar heimildir til útgáfu ríkisskuldabréfa til að dekka þessar skuldbindingar Íbúðalánasjóðs, ÍL-sjóðs eins og hann heitir, sem er tuttugu og eitthvað ára gamalt kosningaloforð, á sér rót þar.
Ég man það bara vel sjálfur sem íbúðarkaupandi á einhverjum tíma hvað þetta var hvimleitt og hálfgerður kækur stjórnmálamanna á Íslandi að vera að lofa einhverju svona til kjósenda vitandi það raunverulega að áhættan er í fyrsta lagi mikil og ábyrgðin er skattgreiðenda. Þetta hefur líka áhrif þegar stjórnmálamenn lofa einhverju svona, t.d. á íbúðamarkaði eins og hefur verið gert í fleiri áratugi, og ég man alveg aftur til níunda áratugarins, að slík loforð, þegar stjórnmálamenn og ríkisvaldið eru að hygla einhverjum kjósendahópi með einhverjum slíkum kostakjörum, valda einungis því, herra forseti, og þetta er ég margoft búinn að sjá, að íbúðaverð hækkar. Einu afleiðingarnar eru í raun þær að menn skulda meira, örstuttu seinna skulda menn einfaldlega meira. Þeir sem kaupa íbúðir í framhaldinu þurfa að kaupa dýrar íbúðir og skulda þar af leiðandi meira, taka meiri lán. Áhættan er meiri. Og ef það koma einhverjar sveiflur á markaðinn þá er ábyrgðin t.d. í þessu tilviki ríkisins.
Auðvitað er þetta ekki svona einfalt eins og ég er að lýsa. Í þessu máli átti þessi hrakfallasaga sér nokkrar brekkur vegna þess að þarna er einhvers konar röð óhappatilviljana, ef það má kalla það óhöpp, en röð mistaka sem gerð eru, ekki bara af stjórnmálamönnum heldur líka þeim sem fara með þessa fjármuni á vegum ríkisins, hjá Íbúðalánasjóði og annars staðar í kerfinu, og fólust aðallega í því, herra forseti, ef ég kem orðum að þessu, að veita lántakendum í samkeppni á markaði heimild til uppgreiðslu lánanna en sú sama uppgreiðsla er ekki fyrir Íbúðalánasjóð. Þeir standa uppi með lán. Á meðan allir eða mjög margir lántakendur hjá þeim greiða upp sín lán þá standa þeir sjálfir uppi með skuldabréfin og geta ekki greitt þau upp. Ef ég skil þetta allt saman rétt þá hefur þetta átt sér stað á einhvern slíkan hátt í þessu tilviki. Hæstv. ráðherra leiðréttir þetta kannski ef þetta er einhver grundvallarmisskilningur.
Ég ætla nú ekki að vera langorður hérna, en ég ætla aðeins að tala meira um loforð stjórnmálamanna vegna þess að ég hef áhuga á því. Ég hef auðvitað áhuga á því að — og ekki getur maður haft á stjórn kjósendum þegar þeir kjósa þá sem þeim líst best á, en það er náttúrlega afskaplega hvimleitt þegar stjórnmálamenn ganga fram og lofa einhverju sem er eiginlega of gott til að geta verið satt en þurfa svo að standa við það og reikningurinn er sendur skattgreiðendum. Mér detta í hug einhver lítt ígrunduð loforð. Kannski nýjasta loforðið sem ég man eftir er þessi skattlagning á inngreiðslu í lífeyrissjóði. Nú er ég enginn sérfræðingur í lífeyrissjóðum eða skattlagningu þeirra, iðgjaldanna, en þessi hugmynd er auðvitað, að ég best veit og hef séð og lesið mér til um, lítt ígrunduð, herra forseti. Sem betur fer held ég að það sé ekki í stefnu núverandi stjórnvalda að ganga í þetta, enda myndi mér finnast það afskaplega áhættusamt að fara í eitthvað svona án þess að vera búinn að rannsaka það alveg ofan í kjölinn hvort þetta haldi virkilega vatni yfirleitt til langs tíma. Bara sem dæmi um stjórnmálalegt loforð í aðdraganda kosninga vil ég nefna þetta.
Annað, herra forseti, fyrst ég er byrjaður, eru þessi loforð stjórnmálaflokka í gegnum tíðina að stórauka strandveiðar sem almennt er viðurkennt að eru alls ekki þjóðhagslega jafn hagkvæmar og aðrar veiðar. Það er auðvitað þegar allt kemur til alls, herra forseti, allt á kostnað skattgreiðenda vegna þess að þjóðartekjur munu í kjölfarið eitthvað dragast saman ef það á að fara út í óhagstæðari veiðar heldur en eru stundaðar nú um stundir. Auðvitað mun það bara minnka skatttekjur og þar af leiðandi minnka tekjur ríkissjóðs, valda auknum kostnaði og fyrir rest endar það auðvitað bara í að þetta fé verður sótt í vasa skattgreiðenda.
Ég ætla ekki að hafa þetta lengra, herra forseti, en vil bara hafa þetta sem áminningu til stjórnmálastéttarinnar og kannski kjósenda að svona kosningaloforð geta verið ansi þung fyrir skattgreiðendur.