fjáraukalög 2025.
Forseti. Hér hefur átt sér stað mjög ítarleg umræða um þetta mál sem hér er verið að ræða, uppgjörið á svokölluðum ÍL-sjóði. Ég vil þakka hv. þingmönnum fyrir framlag þeirra til umræðunnar og brýna það sem fram kom m.a. í máli hv. þm. Bergþórs Ólasonar um að hér er um mjög stórar upphæðir að ræða og mjög mikilvægt að fjárlaganefnd kynni sér vandlega hvers eðlis þetta vandamál er og í hverju lausnin felst.
Ég hafði saknað þess í umræðunni að það örlaði á skilningi á eðli vandamálsins en nú vill svo til að síðasti ræðumaður, hv. þm. Karl Gauti Hjaltason, hitti naglann lóðbeint á höfuðið. Vandamálið var auðvitað að út voru gefin löng skuldabréf til fjármögnunar á lánum sem voru uppgreiðanleg. Þar með sat ríkið eftir með það sem kallað er opin vaxtastaða. Það er grunnurinn að vandanum. Þetta var vanhugsað. Við þessu var varað. Við þeim varnaðarorðum var ekki brugðist. Því erum við hér í dag.
Það er hárrétt sem komið hefur fram í máli hv. þingmanna að mjög mikilvægt er að við drögum lærdóm af þessu. Ég vil brýna fyrir fjárlaganefnd að kynna sér vandlega grunn þeirra samninga sem að fjáraukalögin byggja á og sérstaklega að grandskoða vaxtakjör, ávöxtunarkröfu þeirra bréfa sem lögð eru inn í það uppgjör, af því að nokkuð hefur örlað á misskilningi í umræðunni um þann grundvöll, um samningsrúmið sem var til staðar og hvernig samningurinn fellur inn í það samningsrúm og að síðustu um kostnað ólíkra valkosta sem í stuttu máli má segja að hafi verið slit sjóðsins, áframhaldandi rekstur hans og síðan þeir samningar sem þessum fjárauka er ætlað að fjármagna.