156. löggjafarþing — 32. fundur,  29. apr. 2025.

veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald.

279. mál
[19:40]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 85/2007, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald. Með frumvarpinu er stefnt að því að bæta umgjörð skammtímaleigu á Íslandi, styrkja eftirlit með þeirri starfsemi og stuðla að auknu framboði á íbúðarhúsnæði. Það er ljóst að hátt hlutfall skammtímaleigu fer fram án þess að skráning eða tilskilin leyfi liggi fyrir. Samkvæmt nýlegri úttekt sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu má áætla að um 4.200 einstaklingar bjóði fasteignir til skammtímaleigu án skráningar eða rekstrarleyfis. Það sýnir svart á hvítu að yfirsýn stjórnvalda yfir þessa starfsemi er takmörkuð og að markmið laganna, eins og þau standa í dag, hafa til þessa ekki að fullu náð fram að ganga.

Frumvarp það sem ég mæli hér fyrir felur í sér þrjár meginbreytingar. Í fyrsta lagi er lögð til breyting sem snýr að skilyrðum heimagistingar. Samkvæmt gildandi lögum er einstaklingi heimilt að leigja út tvær eignir undir skráningarskylda heimagistingu, þ.e. lögheimili sitt og eina aðra fasteign í sinni eigu innan eða utan þéttbýlis. Fyrsta breyting frumvarpsins felur í sér að afmarka skráningarskylda heimagistingu við eina eign einstaklings innan þéttbýlis, þ.e. við lögheimili hans. Einstaklingi verður eftir sem áður heimilt að leigja út aðra eign utan þéttbýlis sem er í hans eigu. Þá mega samanlagðar heildartekjur vegna útleigðu eignanna eftir sem áður ekki fara yfir 2 millj. kr. á ári né útleigðar gistinætur yfir 90. Markmið þessarar breytingar er að stuðla að auknu jafnvægi á húsnæðismarkaði og bæta aðgengi að íbúðum til langtímaleigu, sérstaklega á svæðum þar sem þrýstingur á leigumarkaðinn er hvað mestur. Breytingin endurspeglar þá hugmyndafræði sem liggur að baki heimagistingu, að hún eigi að snúast um nýtingu á eigin íbúðarhúsnæði á tímabilum þegar þess er ekki þörf, frekar en atvinnustarfsemi í formi reksturs fjölda íbúða til skammtímaleigu. Með því að skýra mörkin milli heimagistingar og atvinnurekstrar enn betur er unnið að því að tryggja jafnræði og gegnsæi á markaði.

Í öðru lagi er með frumvarpinu lagt til að þegar útgefin rekstrarleyfi gististarfsemi í íbúðarhúsnæði innan þéttbýlis verði tímabundin til 5 ára í senn. Samkvæmt gildandi lögum eru slík útgefin rekstrarleyfi ótímabundin en með breytingarlögum nr. 43/2024 var tekið fyrir útgáfu slíkra rekstrarleyfa og rekstrarleyfisskyld gististarfsemi þéttbýli skilyrt við atvinnuhúsnæði. Í dag eru um 400 slík leyfi í gildi, þ.e. ótímabundin, og telja þau um fimmtung allra virkra rekstrarleyfa til gististarfsemi. Verði frumvarpið að lögum munu þessi tilteknu rekstrarleyfi, sem nú eru ótímabundin, verða látin halda gildi sínu í fimm ár frá gildistöku laganna. Að þeim tíma liðnum, eða frá 1. janúar 2031, þurfa viðkomandi rekstraraðilar að sækja um nýtt rekstrarleyfi samkvæmt gildandi lögum ef ætlunin er að halda áfram starfsemi. Í þessu samhengi er rétt að taka fram að breytingin felur hvorki í sér ný né breytt skilyrði þegar kemur að endurnýjun leyfanna. Breytingin kveður einfaldlega á um að umræddur hópur rekstrarleyfishafa þurfi að uppfylla skilyrði laganna á fimm ára fresti líkt og tíðkaðist með öll rekstrarleyfi fyrir 1. janúar 2017. Markmiðið með þessari breytingu er að skapa betri yfirsýn yfir atvinnustarfsemi í íbúðarhúsnæði og tryggja að hún sé í samræmi við skipulag sveitarfélaga hverju sinni, byggingarreglur og öryggiskröfur.

Í þriðja lagi er í frumvarpi þessu lagt til að sýslumanni verði veitt heimild til að óska eftir upplýsingum frá ríkisskattstjóra í einstaka málum þar sem rökstuddur grunur er um brot á lögum nr. 85/2007. Um getur verið að ræða upplýsingar um tekjur einstaklinga, t.d. úr skattframtölum, sem geta skipt verulegu máli við rannsókn og eftirlit. Með þessari breytingu er ætlunin að efla eftirlitshlutverk sýslumanns með gististarfsemi og heimagistingu sem fer fram án skráningar eða tilskilinna leyfa. Breytingin felur ekki í sér almenna gagnamiðlun milli sýslumanns og ríkisskattstjóra. Þvert á móti munu upplýsingabeiðnir sýslumanns afmarkast við tiltekin mál þar sem hann hefur rökstuddan grun um að aðili sem stundar skráningarskylda heimagistingu hafi gerst brotlegur við ákvæði laga nr. 85/2007. Þá er kveðið á um að ríkisskattstjóri þurfi að leggja sjálfstætt mat á hvort umbeðin gögn séu nauðsynleg fyrir viðkomandi eftirlitsmál, hvort gögnin hafi bein tengsl við skráningarskylda gististarfsemi og hvort þau séu afhendingarhæf. Gera má ráð fyrir að þessi breyting flýti málsmeðferð og rannsókn sýslumanns og auðveldi sönnunarfærslu í einstaka málum. Þrátt fyrir að leyfislaus skammtímaleiga hafi dregist saman um 30% á undanförnum sjö árum áætlar sýslumaður að enn fari um helmingur slíkrar leigu fram án skráningar eða tilskilinna leyfa. Verði breytingin að lögum má ætla að hún hafi ákveðinn fælingarmátt í för með sér.

Herra forseti. Frumvarp það sem ég mæli hér fyrir um er í samræmi við áherslur í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins um jafnvægi á húsnæðismarkaði og að fleiri íbúðir nýtist sem heimili fólks. Frumvarpið er enn fremur í samræmi við áherslur í ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun hennar sem samþykkt var á Alþingi í júní árið 2024. Markmið frumvarpsins er að bæta aðgengi að íbúðarhúsnæði innan þéttbýlis og að draga úr þrýstingi á leigumarkaði, sérstaklega á þeim svæðum þar sem húsnæðisskortur er hvað mestur. Í þessu samhengi er rétt að undirstrika, líkt og fram kemur í umfjöllun um 1. gr. frumvarpsins, að það er sveitarfélögum í sjálfsvald sett að skilgreina þéttbýli í aðalskipulagi sínu og stýra þannig þróun gististarfsemi innan sinna marka í samræmi við það. Með þessu eru sveitarfélög í stakk búin til að móta stefnu og forgangsröðun með hagsmuni íbúa og staðbundins samfélags að leiðarljósi.

Áhrif aukinnar skammtímaleigu á húsnæðismarkaðinn eru vel þekkt. Þegar íbúðir eru teknar úr hefðbundinni notkun, svo sem til langtímaleigu, og nýttar til skammtímaleigu til ferðamanna dregur úr framboði á íbúðum fyrir langvarandi búsetu. Með frumvarpinu er því m.a. leitast við að styrkja stöðu leigjenda, bæta aðgengi að íbúðarhúsnæði og stuðla að stöðugleika í húsnæðismálum.

Eftirlit með heimagistingu hefur aukist á undanförnum árum, m.a. með tilkomu svokallaðrar heimagistingarvaktar hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu sem starfrækt hefur verið frá árinu 2019. Þrátt fyrir þann árangur sem náðst hefur við að draga úr leyfislausri starfsemi er enn verk að vinna. Líkt og áður hefur komið fram í ræðu minni áætlar sýslumaður að um 4.200 eignir séu í virkri skammtímaleigu án skráningar eða tilskilinna leyfa. Þetta sýnir að áfram er þörf á úrbótum og betri yfirsýn stjórnvalda yfir þessa starfsemi. Með þeim heimildum til gagnaöflunar sem lagðar eru til í frumvarpinu og með skýrari skilgreiningu á því hvað telst heimagisting er markmiðið að tryggja skilvirkara eftirlit með gististarfsemi. Slíkt eftirlit er öllum til hagsbóta.

Virðulegi forseti. Við vinnslu frumvarpsins var haft samráð við helstu hagaðila. Fundað var með sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu, Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, embætti ríkisskattstjóra, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og fleiri aðilum sem koma að framkvæmd og eftirliti með starfsemi. Þá bárust 34 umsagnir í samráðsgátt stjórnvalda þar sem meginmarkmið frumvarpsins fengu almennt góðar undirtektir. Ég tel að með þessu frumvarpi sé stigið mikilvægt og tímabært skref í átt að ábyrgri ferðaþjónustu sem og betra jafnvægi á húsnæðismarkaði. Með skýrari skilgreiningum, auknu gegnsæi og bættri yfirsýn stjórnvalda verða réttindi og skyldur aðila á markaði aðgengilegri og afmarkaðri. Það er hagsmunamál allra að skýrar reglur gildi um notkun íbúðarhúsnæðis til skammtímaleigu og eftirlit með slíkri starfsemi sé skilvirkt.

Að lokinni þessari umræðu í þingsal legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. atvinnuveganefndar.