156. löggjafarþing — 32. fundur,  29. apr. 2025.

veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald.

279. mál
[19:54]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir hennar ágætu yfirferð. Í þeim umsögnum sem bárust vegna frumvarpsins, sem fjallar um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, komu fram nokkrar neikvæðar athugasemdir frá hagsmunaaðilum og umsagnaraðilum. Þó almennt hafi frumvarpinu verið tekið jákvætt bentu sumir umsagnaraðilar á ákveðin áhyggjuefni. Ég ætla rétt að reifa þær ábendingar í örfáum liðum sem gætu flokkast undir að vera, kannski fulldjúpt í árinni tekið að segja neikvæðar, en þar sem einhverjar ákveðnar áhyggjur eru viðraðar.

Sumir umsagnaraðilar töldu að frumvarpið fæli í sér of mikla miðstýringu og að það skorti sveigjanleika fyrir sveitarfélög og aðra umsagnaraðila til að aðlaga reglur að staðbundnum aðstæðum. Þeir bentu á að bindandi umsagnir gætu takmarkað möguleika á að taka tillit til sérstakra aðstæðna eða nýrra upplýsinga sem kæmu fram eftir að umsögn hefði verið veitt.

Í öðru lagi komu einnig fram áhyggjur af því að frumvarpið gæti leitt til aukins eftirlits og þvingunarúrræða sem gætu haft neikvæð áhrif á rekstraraðila. Sumir töldu að ákvæði um að lögreglustjóri skuli án fyrirvara eða aðvörunar stöðva leyfisskylda starfsemi sem fram fer án tilskilins leyfis gætu verið of harkaleg og að betra væri að veita aðvörun áður en til slíkra úrræða væri gripið.

Í þriðja lagi kom einnig fram að þótt samráð hafi verið haft við ýmsa aðila við vinnslu frumvarpsins bentu sumir umsagnaraðilar á að ekki hefði verið nægilegt samráð við alla hagsmunaaðila, sérstaklega þá sem starfa í ferðaþjónustu og veitingarekstri. Einhverjir þeirra töldu að betra samráð gæti leitt til betra og raunhæfara lagaumhverfis.

Í fjórða lagi bentu sumir umsagnaraðilar á og lýstu áhyggjum af því að frumvarpið gæti haft neikvæð áhrif á smærri rekstraraðila, sérstaklega í dreifbýli, þar sem auknar kröfur og flóknara regluverk gætu gert þeim erfiðara fyrir að starfa. Þeir bentu á að mikilvægt væri að tryggja að reglur væru ekki of íþyngjandi fyrir minni fyrirtæki.

Þetta eru kannski ekki ábendingar sem eru mjög afgerandi eða með einhverju móti hægt að segja að gangi hart að frumvarpinu sjálfu eða frummælanda þess, hæstv. ráðherra, en endurspegla þó mikilvægi þess að vanda til lagasetningar og tryggja að ný lög taki tillit til fjölbreyttra sjónarmiða og aðstæðna. Það er mikilvægt að halda áfram að vinna að því að skapa jafnvægi milli nauðsynlegs eftirlits og stuðnings í atvinnulífinu.

Þetta er alls ekki tæmandi listi, né hvert og eitt atriði krufið til mergjar, heldurur meira svona létt reifuð yfirferð yfir það sem mátti finna í athugasemdum. Það er þó kannski ástæða til — án þess að ég sé eitthvað að ætlast til þess að hæstv. ráðherra bregðist sérstaklega við því — að nefna tvo punkta af þeim sem ég hef farið yfir hér aftur. Það er annars vegar þetta sem varðar heimild lögreglustjóra til að stöðva án fyrirvara eða aðvörunar leyfisskylda starfsemi sem fer fram án tilskilins leyfis. Ég ímynda mér að til að til slíkra inngripa komi þá sé ekki bara um að ræða skort á einhverjum pappírum eða eitthvað slíkt heldur væntanlega þá að aðstæður séu hreinlega ekki boðlegar og jafnvel varasamar. Sé það misskilningur af minni hálfu þá geta aðrir hv. þingmenn eða hæstv. ráðherra þá leiðrétt það ef það er ekki rétt skilið hjá mér, andi textans í frumvarpinu.

Eins það að sérstaklega skuli vera teknar fram áhyggjur af smærri rekstraraðilum í dreifbýli. Sá sem hér stendur nær ekki alveg utan um hvers vegna slíkar áhyggjur hafa vaknað í dreifbýlinu umfram þéttbýlið, nema ef vera kynni það að það er mjög algengt í gistimálum í dreifbýlinu að þó að skipulagsvaldið sé á hendi sveitarfélagsins þá er það gisting á jörð sem er í eigu rekstraraðila. Ég ímynda mér að það sé það sem þarna er m.a. verið að vísa til, að það kannski þurfi ekki alveg sams konar aðhald í dreifbýlinu eins og þessu frumvarpi, að því er mér sýnist, er augljóslega ætlað að ná til þeirra sérstöku aðstæðna sem þessi ákveðni rekstur og þetta rekstrarform hefur augljóslega haft í þéttbýlinu og það gildir ekki bara um höfuðborgarsvæðið.

Þetta er kannski það helsta sem mig langaði að nefna hérna, þessar ábendingar. Að öðru leyti sýnist mér heilt yfir þessu frumvarpi vera frekar vel tekið. En auðvitað verður það aldrei svo þegar á að gera einhverjar breytingar á rekstrarumhverfi, í hvers konar rekstri, að það verði án gagnrýni. Það væri líklega Íslandsmet ef hæstv. ráðherra tækist það.

En mig langaði að varpa þessu fram og sérstaklega þessu er varðar dreifbýlið. Ég skil þessar áhyggjur og þessar ábendingar þannig að það sé ekki þörf á sama aðhaldi í dreifðu byggðunum eins og í þéttbýlinu.

Ég kannski læt þetta duga, frú forseti, af þessum vangaveltum, en svona skil þetta eftir hangandi til kannski frekari túlkunar eða útskýringar fyrir mig af hálfu þeirra hv. þingmanna sem hyggjast taka hér til máls eða jafnvel að hæstv. ráðherra bregðist við þessum vangaveltum sjálf, hvort sem hún gerir það í andsvari eða bara hreinlega í samantekt, það breytir engu. En ég hef mikinn áhuga á að átta mig á því hvort ég er að skilja þetta rétt, að þetta sé ástæðan fyrir að dreifbýlið sé tekið sérstaklega út fyrir sviga í þessum athugasemdum.