veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka mjög fína umræðu að mínu mati sem hefur átt sér stað um þetta mál. Mig langar aðeins til að nota tækifærið hér til að fara yfir helstu punkta. Eitt til að rifja upp; hugmyndafræðin á bak við þessa svokölluðu heimagistingu er svona í anda deilihagkerfisins. Þetta er hugmyndafræði sem gerir fólki kleift að leigja út ónotað húsnæði eða hluta af heimilinu til skamms tíma. Það er hugsunin og var það hér á landi þegar farið var af stað með þetta og var það í löndunum í kringum okkur. Ég held að við þekkjum flest upphafstímabil þessarar nálgunar í tengslum við deilihagkerfið en fór úr böndunum víða og varð að misumsvifamiklum atvinnurekstri fólks, allt frá því að vera atvinnurekstur yfir í að vera mjög umsvifamikill atvinnurekstur, sem að hluta til olli ákveðnu álagi á íbúðarhúsnæði og síðan var ákveðin og oft og tíðum ekki alveg sanngjörn samkeppni við gististaði sem borga gjöld og skatta af sinni atvinnustarfsemi. Þannig að það er full ástæða til þess einmitt að fara ofan í saumana á þessu og við erum sannarlega ekki eina landið þar sem það er gert og ég nefni allt frá borgum eins og Barcelona sem hefur tekið gríðarlega harða afstöðu gegn heimagistingunni vegna mikils ferðamannastraums og þrýstings á húsnæðismarkað yfir í lönd nær okkur, m.a. héruð eða borgir á Norðurlöndum sem hafa stigið ákveðin skref. Það er svo sem það sem er verið að gera.
Varðandi það að þetta komi í veg fyrir að þeir sem eigi húsnæði — hér hafa verið tekin dæmi um fólk sem á íbúð í þéttbýli og þá gjarnan í öðrum þéttbýliskjarna en það er með lögheimili. Fyrir því eru alls konar ástæður, það vill nota hana sjálft hluta úr ári fyrir sig og fjölskyldu sína og þá leigja út annan hluta. Jú, það er akkúrat þessi starfsemi fólks sem við erum með þessu frumvarpi að reyna að sveigja í aðrar áttir vegna þess að það er akkúrat þetta sem gerir að verkum að viðkomandi húsnæði nýtist ekki í langtímaleigu. Með öðrum orðum, það nýtist ekki til langvarandi leigu, sem sagt heimilisfestar annars fólks. Það er ekki þar með sagt að það sé verið að stoppa fólk alveg í því að nýta húsnæðin sín svona vegna þess að það er jú einfalt. Ef viðkomandi íbúð númer tvö, ef svo má segja, þar sem fólk á ekki sjálft lögheimili innan þéttbýlis, er á svokölluðu atvinnusvæði, við getum tekið sem dæmi úr Reykjavík að Skeifan er svona blönduð byggð, það er húsnæði og atvinnusvæði, þá er einfalt að fá rekstrarleyfi og halda áfram að leigja út í skammtímaleigu ef fólk kýs svo. En það er verið að stemma stigu við þessari atvinnustarfsemi og skammtímaleigu húsnæðis, ferðaþjónustustarfsemi, í íbúðahverfum.
Um ástæðuna fyrir því, eins og hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson kemur inn á, að hér er verið að fara í aðra áttina, þ.e. að fólk sem að býr í þéttbýli eða er með lögheimili þar geti leigt út íbúðir sem heimagistingu í dreifbýli, þá er því til að svara að markmiðið er að vinna gegn þessum skorti, auka framboð íbúðarhúsnæðis í þéttbýli. En það er líka staðreynd að það eru ákveðnir þéttbýliskjarnar hér og þar um landið þar sem er sannarlega ekki skortur á íbúðarhúsnæði, nema jafnvel síður sé, og þá geta sveitarfélögin hagað málum þannig í aðalskipulagi viðkomandi sveitarfélags að skilgreina þéttbýlið á annan hátt. Það er líka möguleiki.
Það hefur líka verið nefnt töluvert hér að staðreyndin er sú að fjárfesting í íbúðarhúsnæði er góð fjárfesting hér á landi og það eru fjölmargir möguleikar fyrir fólk sem vill nýta þá fjárfestingu ef það er í færum til að eignast fleiri en eitt íbúðarhúsnæði og leigja það í langtímaleigu eða fá rekstrarleyfi og fara þá í skammtímaleigu. Tækifærin eru mýmörg fyrir þá sem vilja halda þessu áfram. En þessu frumvarpi er ætlað að tryggja eins og kostur er að hugmyndafræðin á bak við þetta deilihagkerfi íbúðarhúsnæðis standi og að tryggja eins og kostur er að íbúðarhúsnæði sé notað til þess sem það er fyrst og fremst hugsað. Síðan í þriðja lagi, þegar um er að ræða umsvifamikla gististarfsemi, að lög og reglur um slíka atvinnustarfsemi ná utan um þetta.
Og að lokum kannski um áhyggjur af ákvæðinu sem kveðið er á um réttinn til að fylgja eftir að lögum og reglum sé framfylgt og það sé mögulega inngrip í persónuvernd, þá er þetta ekki opið leyfi heldur er það einfaldlega það að þegar uppi er rökstuddur grunur um brot þá sé hægt að kalla eftir gögnum. En það er alveg rétt, þetta mál er að fara inn í atvinnuveganefnd og allar þessar spurningar og þær vangaveltur sem hér hefur verið varpað fram eru til þess fallnar að hv. atvinnuveganefnd taki þær til frekari skoðunar. Ég hlakka bara til að fylgjast með því og óska nefndinni velfarnaðar í þeirri vinnu.