156. löggjafarþing — 32. fundur,  29. apr. 2025.

veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald.

279. mál
[20:33]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. viðskiptaráðherra fyrir sína ágætu ræðu. Mig langaði að koma svona í restina og vekja athygli á því — ég var nú ekki búinn að reka augun í þetta en mundi síðan eftir ábendingu sem ég fékk frá áhugasömum áhorfanda — að þegar við vorum að takast á við svipað frumvarp fyrir rúmu ári höfðum við það í huga að horfa til bændagistingar sem er til staðar og þá var tekið sérstaklega utan um þá gistingu. Það eru þá bændur sem eru kannski með tvö eða þrjú smáhýsi á sinni jörð — ég held að það sé ekki í frumvarpinu, ef ég hef skilið þetta rétt. Þetta er mikilvæg atvinnugrein til sveita, í ferðaþjónustu bænda, og þarna liggja fjárfestingar fyrir. Það liggur fyrir að þetta er ekki íbúðarhúsnæði sem slíkt. Þetta eru í flestum tilfellum smáhýsi sem eru til útleigu en hugsanlega er þarna ákveðinn varnagli sem við þurfum að slá í vinnu nefndarinnar. Ég beini þessu til hæstv. ráðherra því að ég held að við þurfum að skoða þetta. Ég rak augun í þetta eftir ábendingu frá áhugasömum áhorfanda og þetta þurfum við að laga.