156. löggjafarþing — 32. fundur,  29. apr. 2025.

veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald.

279. mál
[20:35]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið, þetta er góður punktur. En áður en ég kem að því þá langar mig kannski aðeins, af því að hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson og mögulega fleiri voru búnir að nefna muninn á milli þéttbýlis og dreifbýlis, að bæta við svar mitt, eða hugleiðingar, frá því áðan og geta þess að í þéttbýli má leigja út lögheimili og svo eina eign utan þéttbýlis en í dreifbýli má leigja út lögheimili og aðra eign í dreifbýli. Það er eiginlega, ef eitthvað er, meira svigrúm.

En varðandi þessa bændagistingu þá heyrir það sennilega undir rekstrarstarfsemina. Þar eru í raun og veru ekki hömlur. Þessi skilyrði um lögheimilið og eina eign utan þéttbýlis eiga við þegar um er að ræða þessa heimagistingu sem fellur í raun og veru utan rekstrarstarfsemi. Rekstrarstarfsemi er augljóslega háð frekari skilyrðum. En ég myndi telja að bændastarfsemi sem slík, sem atvinnustarfsemi innan ferðaþjónustu, falli þar undir og þá eiga þessar hömlur ekki við sem við erum að setja á heimagistinguna. Það eru svona fyrstu viðbrögð við þessu.