veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir góð svör og ég tek bara undir með ráðherra hvað þetta varðar. En ég held að það sé mikill breytileiki hvað þetta varðar, hvort menn séu innan þessa ramma og með ákveðin rekstrarleyfi eða hvort menn séu með þessi hús í einhverri skráningu o.s.frv. Ég held að þetta sé eitt af því sem við þurfum að taka utan um í nefndinni. Ég ítreka það bara að þetta er mikilvægur þáttur í ferðaþjónustu, sérstaklega í dreifbýlinu, þar sem hótelgisting og þess háttar er t.d. ekki fyrir hendi. Auk þess hefur þetta sömuleiðis verið góð búbót fyrir bændur.
Kærar þakkir, hæstv. ráðherra, fyrir góð svör. En ég legg til, frú forseti, að nefndin taki þetta vel fyrir og ég á ekki von á öðru en að umsagnir sem koma inn þegar nefndin tekur málið til skoðunar komi sömuleiðis til með að benda á þetta.