156. löggjafarþing — 32. fundur,  29. apr. 2025.

veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald.

279. mál
[20:38]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka aftur andsvarið. Þessar hugleiðingar hv. þingmanns fólu ekki í sér beina spurningu en ég ætla að nota tækifærið og taka undir að þetta er m.a. angi af þessu stóra máli sem varðar gististarfsemi sem er mjög vert að nefndin velti fyrir sér og skoði. Ég segi, þar sem ég stend hér, að ég sé ekki í fljótu bragði af hverju slík gisting ætti ekki heima undir því sem almennt er rekstrarleyfisskyld gististarfsemi. Það getur vel verið að nefndin finni það út að fengnum umsögnum að þarna sé mögulega hægt að skipta þessu á einhvern hátt. Ég ítreka það bara að markmiðið með þessu er ekki síst að auka framboð húsnæðis til íbúa í þéttbýli og ná utan um þessa starfsemi á þann hátt að öryggi þeirra sem leigja sé tryggt eins og kostur er. Innan þess ramma er mjög áhugavert að sjá hvaða leiðir verða lagðar til, ef einhverjar, til viðbótar við það sem kemur fram í þessu frumvarpi.