fullgilding fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Konungsríkisins Taílands.
Forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um fullgildingu fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Konungsríkisins Taílands. Með þingsályktunartillögunni er leitað heimildar Alþingis til fullgildingar á fríverslunarsamningi milli EFTA-ríkjanna og Konungsríkisins Taílands sem undirritaður var í Davos í Sviss 23. janúar 2025.
Fríverslunarviðræður hófust milli EFTA-ríkjanna og Taílands árið 2005 en gert var hlé á viðræðunum í kjölfar valdatöku hersins árið 2006. Viðræður hófust að nýju í kjölfar þess að lýðræðislegar kosningar fóru fram í landinu árið 2022 og viðræðunum lauk í nóvember 2024.
Fríverslunarsamningurinn liðkar fyrir vöru- og þjónustuviðskiptum milli samningsaðila auk þess að fela í sér skuldbindingar sem lúta að fjárfestingum, vernd hugverka og sjálfbærri þróun. Samningurinn kveður á um niðurfellingu tolla á allar helstu útflutningsafurðir Íslands, ýmist strax við gildistöku hans eða í áföngum yfir lengra tímabil. Samningurinn kveður einnig á um samstarfsverkefni milli íslenskra og taílenskra aðila á sviði sjálfbærra fiskveiða og fiskveiðistjórnar en Taíland er meðal stærstu fiskveiðiþjóða heims. Samningurinn veitir íslenskum fyrirtækjum auknar heimildir til fjárfestinga í Taílandi og bætir aðgang íslenskra þjónustuveitenda að taílenskum þjónustumarkaði.
Vöruútflutningur frá Íslandi til Taílands nam 650 millj. kr. árið 2024. Á sama tíma nam verðmæti innfluttra vara frá Taílandi 5,7 milljörðum kr. Útflutningur var að mestu sjávarafurðir, vélbúnaður til matvælaframleiðslu og drykkjarvatn. Helstu innflutningsvörur frá Taílandi eru raftæki, farartæki, hjólbarðar, fatnaður og matvæli. Útflutningur á þjónustu til Taílands nam rúmlega 1,2 milljörðum kr. árið 2023. Á sama tíma nam innflutningur þjónustu rúmlega 1,7 milljörðum kr. Með samningnum er lagður grunnur að bættri samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja, fjárfesta og einstaklinga í Taílandi.
Það er afar ánægjulegt að leggja þessa þingsályktunartillögu fram um aukið frelsi í viðskiptum í heiminum á tíma þar sem heldur þrengir að slíkum viðskiptum.
Ég óska eftir faglegri umræðu um innihald samningsins.