156. löggjafarþing — 32. fundur,  29. apr. 2025.

fullgilding fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Konungsríkisins Taílands.

281. mál
[20:43]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Það er ánægjulegt að taka þátt í umræðu um tillögu hæstv. ráðherra um fullgildingu fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Konungsríkisins Taílands. Eins og hæstv. ráðherra fór yfir í framsögu sinni hefur aðdragandinn að þessum fríverslunarsamningi verið nokkuð langur vegna ýmissa uppákoma auk þess sem þessar samningaviðræður taka iðulega dágóðan tíma. Þessi samningur kveður á um niðurfellingu tolla á allar helstu útflutningsafurðir Íslands sem eru mestmegnis sjávarafurðir. Það er því ljóst að það eru gríðarlega mikil tækifæri fólgin í þessum samningi. Sömuleiðis felur samningurinn í sér samstarfsverkefni milli íslenskra og taílenskra aðila á sviði sjálfbærra fiskveiða og fiskveiðistjórnar en Taíland er einmitt meðal stærstu fiskveiðiþjóð heims. Þar tel ég að séu ýmis vannýtt tækifæri fyrir Íslendinga, þ.e. tækifæri til þess að flytja út hugvit og nýsköpun, íslenska sérþekkingu á sjávarútvegi sem mikil eftirspurn er eftir um víða veröld.

Vöruútflutningur frá Íslandi til Taílands nam 650 millj. kr. árið 2024 en á sama tíma er verðmæti innfluttra vara frá Taílandi 5,7 milljarðar kr. Það er mikilvægt að stjórnvöld styðji við íslenskan útflutning og að utanríkisviðskiptaráðherra, sem hæstv. utanríkisráðherra sannarlega er, fylgi vel eftir, tækifærum sem felast í þessum samningum sem við erum að kappkosta að gera.

Það er auðvitað ástæða til að fagna því sem fram kemur í greinargerðinni og ítreka það að EFTA-ríkin hafa gert 33 fríverslunarsamninga við alls 44 ríki. Við erum auðvitað partur af og með hlutdeild í því besta sem Evrópa og Evrópusamvinnan hefur upp á að bjóða, annars vegar EES-samningnum og hins vegar EFTA-bandalaginu og stöndum þar að auki utan við tollabandalag ESB þannig að við erum með allt það besta og losnum við allt það versta og þar eigum við auðvitað að halda okkur.

Það er ástæða til að nefna það sem ég hef nokkrum sinnum nefnt í þessari pontu af sama tilefni sem er önnur markmið sem samningar eins og þessi innibera venju samkvæmt og ég sé að eru í þessum samningi sömuleiðis, sem eru áherslur á jafnrétti, lýðræði og réttarreglur, önnur mannréttindi og frelsi. Ég get nefnt sérstök ákvæði um umhverfislega sjálfbær innkaup og um umhverfisstjórnun. Þetta er allt gott og gilt. En mig langar aðeins til að velta því upp, af því að ég hef gjarnan gert það af þessu tilefni, að við fetum einhvern milliveg þegar við erum að leggja áherslu á milliríkjaviðskipti og síðan auðvitað að reyna að útvíkka þessa samninga og taka inn í þá ýmis önnur atriði. Ég er ekki að gera lítið úr markmiðunum með slíkum ákvæðum heldur bara svona með tilliti til þess offors sem Evrópusambandið hefur lagt á slík ákvæði og e.t.v. farið að feta ákveðna vandasama leið að þeim markmiðum sem hefur bara verið að torvelda þessa samningsgerð. Við sem sitjum í þingmannanefnd EES og EFTA þekkjum það að umræður um þessi ákvæði taka ekki minni tíma en umræðan um sjálf viðskiptin. En það hefur annars verið mjög ánægjulegt að taka þátt í starfi þingmannanefndar EFTA og koma að þessum málum þar og ég hlakka til að fylgja þessu eftir hér í þinginu.