156. löggjafarþing — 32. fundur,  29. apr. 2025.

lyfjalög o.fl.

257. mál
[21:48]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið þó að ég sé ekki miklu nær um af hverju ákveðið var að ganga mun lengra en starfshópurinn lagði til árið 2022. Væntanlega var sá hópur meðvitaður um að það geti skapast aðrar aðstæður. En gott og vel. Þá kemur að síðari spurningu minni varðandi reglugerð um lágmarksbirgðir; lágmarksbirgðir nauðsynlegra lyfja sem kveðið er á um í frumvarpi hæstv. ráðherra. Mig langaði til að spyrja út í þessa skilgreiningu á nauðsynlegum lyfjum; hvort samræmi sé við skilgreiningu á Norðurlöndunum, hvort ekki sé gengið lengra, hvort ekki séu meira íþyngjandi ákvæði hér. Ég legg á það áherslu að með þessu frumvarpi hæstv. ráðherra er auðvitað verið að skerða atvinnufrelsi. Það er verið að leggja hér á íþyngjandi skyldur og hvet ég hæstv. ráðherra til að gæta meðalhófs.