156. löggjafarþing — 32. fundur,  29. apr. 2025.

lyfjalög o.fl.

257. mál
[21:49]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Aftur þakka ég hv. 7. þm. Reykjavíkur norður fyrir spurninguna. Ég taldi mig hafa svarað spurningunni skýrt varðandi það af hverju sé gengið lengra, skýrslan kom út árið 2022 og sneri að því hættuástandi sem skapaðist í heimsfaraldrinum. En síðan hefur auðvitað margoft komið til lyfjaskortur án þess að slíkt hættuástand sé til staðar.

Varðandi lista yfir þau lyf sem neyðarbirgðir munu taka til þá er að sjálfsögðu tekið tillit til þess sem önnur lönd eru að gera. En vissulega geta verið mismunandi hefðir í mismunandi löndum og þess krafist að lyfin geti verið aðeins ólík. Þetta er, eins og við vitum, íþyngjandi og við munum án efa krefjast þess að hluti neyðarbirgða sé hjá þeim sem veita heilbrigðisþjónustu, eins og á sjúkrahúsum, og hluti kannski hjá þeim sem selja lyfið. Ég get lofað hv. þingmanni því að meðalhófs verður gætt því að þetta er heilmikið mál að skipuleggja og halda neyðarbirgðir.