156. löggjafarþing — 32. fundur,  29. apr. 2025.

lyfjalög o.fl.

257. mál
[21:51]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Ég vil byrja á að að þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir sína framsögu á þessu frumvarpi til laga um breytingu á lyfjalögum og lögum um dýralyf og lögum um lækningatæki. Ég ætla að eyða mínum tíma hér, frú forseti, í það að ræða um dýralyf, sem vissulega er mikilvægur þáttur í þeirri framleiðslu sem við höfum hér varðandi það skepnuhald og búfé sem hér er. Sömuleiðis er stór þáttur í þessu, sem tengist dýralyfjum, lyf vegna gæludýra. Mér af vitandi hefur sá póstur sem snýr að lyfjum handa gæludýrum vaxið gríðarlega á undanförnum áratugum sem er svo sem bara í takti við breyttan tíðaranda og þann fjölda fólks sem er með hin ýmsu gæludýr.

Ég ætla að dvelja við dýralyf sem tengjast búfé í þessu tilliti og það eru hér gerðar breytingar sem snúa að 35. gr. sem ég held að séu verulega til bóta hvað það varðar. Ef ég hef skilið þetta rétt sem hér er þá er ekki þessi krafa, þ.e. undanþáguheimild sem snýr að því að umsóknin sé ekki endilega af hendi dýralæknis varðandi innflutning á þeim lyfjum sem um er rætt. Ég held að það sé í sjálfu sér hið besta mál. Það er nú einu sinni þannig að við bændur, ég leyfi mér, frú forseti, að hafa mig með í þeim flokki í þessari ræðu — því miður hefur það verið þannig undanfarin ár að það hefur oft komið fyrir að það vanti ákveðnar tegundir af lyfjum, sérstaklega fyrirbyggjandi lyfjum eins og þeim sem snúa að bóluefni, lyfjum sem tengjast ormalyfjum, lyfjum sem tengjast því að taka sníkjudýr úr leik eins og lús og fleira sem leggst í feld gripa. Síðan hafa sum ár komið þar sem hefur verið nægt framboð og góður aðgangur að þessum virkilega góðu bóluefnum sem bændur sækja mikið í því að það er mikið sem er undir við nýtingu á bóluefnum. En síðan virðist það stundum koma fyrir að það virðist ekki vera að aðgangur að þessum lyfjum. Það hefur verið losarahald á þessu hvað það varðar, að það er ekki til og það er ekki hægt að ganga að því vísu að bændur geti fengið bestu mögulegu bóluefni, bestu mögulegu ormalyf og fleiri lyf sem eru nauðsynleg. Það hefur nú verið þannig að blessunarlega þá er sýklalyfjanotkun í landbúnaði á Íslandi sennilega með því minnsta sem að gerist í heiminum, sem er ágætt. En aftur á móti er það þannig að það er sennilega það eina sem hægt er að ganga að sem vísu að fá, þ.e. sem við bændur getum gengið að sem vísu, það eru sýklalyf til notkunar og síðan er það kalk. Síðan er það því miður þannig varðandi hin ýmsu önnur lyf að það er ekki hægt að ganga að þeim vísum.

Í frumvarpinu er talað um lágmarksbirgðir af lyfjum sem sennilega tengist bara ástandinu í heiminum og öðru sem við erum að upplifa hér, því miður, um þessar mundir. Það er algjört lágmark þegar við erum að tala um fæðuöryggi þjóðarinnar að það sé skýr stefna hvað þetta varðar, varðandi lágmarksbirgðir lyfja, hvort sem það er til lækninga á mönnum eða sem varðar skepnuhald.

Ég velti því, frú forseti, hér upp svona sem spurningu eða vangaveltu hvort að við ættum, þar sem við erum að koma hér með ákveðna undanþágu sem er ágæt, að horfa frekar til samstarfs við grannþjóðir okkar og frændur, t.d. í Noregi, að vera þar í samstarfi varðandi innkaup á þessum lyfjum. Í Noregi eru gríðarlega harðar reglur varðandi notkun á dýralyfjum, nákvæmlega eins og við höfum hér, því að vissulega er þetta afskaplega lítill markaður. En þrátt fyrir að markaðurinn sé lítill eru kaupendurnir verulega kröfuharðir. Það er gríðarmikið undir þó svo sem ef við tölum t.d. um bóluefni sem er notað er í sauðfé sem er fyrirbyggjandi varðandi hina ýmsu sjúkdóma, sem ég ætla ekki að þreyta þingheim á með því að fara að telja hér upp, þ.e. bóluefni sem er notað fyrir sauðburð, þá hefur það því miður verið þannig að þrátt fyrir að það sé hér ákveðin framleiðsla, íslenskt bóluefni, sem er vissulega alveg ágætt, þá hafa sumir bændur sömuleiðis haft áhuga á því að nota enn breiðvirkari og öflugri bóluefni í fyrirbyggjandi aðgerðir sem eiga þá að koma í veg fyrir það að ungviði sem fæðist taki til sín einhverja ákveðna sjúkdóma sem eru óneitanlega alltaf fyrir hendi.

Ég vildi koma því hér á framfæri, frú forseti, að ég held að það sé einn af þessum möguleikum sem er vel skoðandi fyrir okkur að efla þá samstarf á milli landa. Vissulega þurfum við alltaf að hafa þær lágmarksbirgðir sem við setjum upp hverju sinni. En ég held að það sé góður möguleiki á samstarfi við frændur okkar t.d. í Noregi hvað þetta varðar að hafa nú þennan aðgang vegna þess að framleiðendur og birgjar erlendis eru kannski ekki mjög upprifnir gagnvart því að vera að taka til nokkur glös til að senda með ærnum kostnaði og fyrirhöfn hingað til lands. Það er það hafa verið brögð að þessu, svona lagað kemur upp og ég hef grun um að þetta sé kannski það sama sem er verið að eiga við í lyfjum handa mannfólkinu. En þegar kemur að blessuðu dýrunum hvað þetta varðar þá tel ég mjög mikilvægt að horfa til þess að fara í samstarf við frændur okkar hvað þetta varðar til að tryggja með góðu móti aðgang að þeim lyfjum sem bændur óska að nota fyrir sitt búfé.

Frú forseti. Ég hef lokið máli mínu.