lyfjalög o.fl.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir góða yfirferð þar sem drepið var á afar mikilvægum málum. Það kom fram í máli hv. þingmanns, sem og í máli hæstv. ráðherra, að Ísland er, eins og við vitum, örmarkaður. Bara af því einu leiðir skert aðgengi að, ég ætla að leyfa mér að segja talsverðum fjölda lyfja, ekki vegna þess að þau séu bönnuð heldur einfaldlega vegna þess að þau eru ekki leyfð. Þau eru ekki leyfð vegna þess að það hefur ekki verið sótt um leyfi. Við erum bara það lítil og við gerum það miklar kröfur að þessir lyfjarisar sjá sér bara ekki hag í því að standa í þessu leyfisferli með tilheyrandi upplýsingakröfu til þess að öðlast söluleyfi á, eins og hv. þingmaður nefndi, örfáum glösum.
Hv. þingmaður nefndi einnig samstarf við nágrannaþjóðir okkar og nefndi þar sérstaklega Noreg sem mér hugnast afar vel, enda held ég að reglugerðir í Noregi séu áþekkar þeim reglum sem hér gilda. Ég velti upp þeirri fyrirspurn, ég ætla ekki að lengja mikið í þessu, frú forseti, ég velti bara upp hugleiðingu til hv. þingmanns hvort það sé ekki bara athugandi að ganga hreinlega svo langt að þegar lyf hefur öðlast markaðsleyfi, söluleyfi í Noregi þá gildi það einfaldlega hér líka. Þá er líka hægt að minnka báknið hér. Eina sem við þurfum eru þá einhverjir þýðendur sem eru góðir í norsku.