156. löggjafarþing — 32. fundur,  29. apr. 2025.

lyfjalög o.fl.

257. mál
[22:03]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir gott andsvar. Ég get svo sem ekki svarað því svona einn, tveir og tíu hvað það varðar hvort við eigum ekki bara að gera það. Ég held að þetta sé ákveðið ferli sem þurfi að eiga sér stað varðandi þetta samstarf sem ber hér á góma. Það hlýtur að þurfa að eiga sinn aðdraganda og fer þá í gegnum heilbrigðisyfirvöld hverju sinni og Lyfjastofnun væntanlega líka. Það er í hlutarins eðli þannig að við þurfum að laga reglugerðir okkar að þeim norsku, vænti ég, til þess að lyfin teljist hér lögleg. Það er vissulega ákveðin vinna sem þyrfti þá að fara í. En það eru margir, held ég, betur til þess fallnir að svara þeirri spurningu og ég veit að hæstv. ráðherra veit mun meira um það hvernig væri hægt að standa að því að koma þessu fyrir. En hitt er svo annað mál að þetta myndi klárlega gera búfjáreigendum miklu auðveldara fyrir, reikna ég með, og sömuleiðis dýralæknum í þessu tilfelli, að geta veitt þessa þjónustu, því að í grunninn er það nú þannig að það er dýralæknir sem ávísar þessu áfram til búfjáreigenda og ef þetta gæti gengið eftir hjá heilbrigðisyfirvöldum þá held ég að það væri mjög góð kostur að fara þá leið.