Frestun á skriflegum svörum.
Forseta hefur borist bréf frá forsætisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 220, um kostnað við gerð og þróun upplýsingatæknilausna, frá Ingvari Þóroddssyni.
Einnig hafa borist bréf frá heilbrigðisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 397, um túlkaþjónustu í heilbrigðisþjónustu, og á þskj. 389, um kostnað vegna jafnréttismála og kynjafræði, báðar frá Snorra Mássyni.
Þá hafa borist bréf frá utanríkisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 221, um kostnað við gerð og þróun upplýsingatæknilausna, frá Ingvari Þóroddssyni, á þskj. 361, um stoðþjónustu, frá Diljá Mist Einarsdóttur, og á þskj. 382, um kostnað vegna jafnréttismála og kynjafræði, frá Snorra Mássyni.
Einnig hefur borist bréf frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 345, um upprunaábyrgðir raforku, frá Karli Gauta Hjaltasyni.
Forseta hefur einnig borist bréf frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 272, um fyrirkomulag og umfang upplýsingatækni hjá ríkinu, frá Degi B. Eggertssyni.
Að lokum hafa borist bréf frá mennta- og barnamálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 240, um kostnað við gerð og þróun upplýsingatæknilausna, frá Ingvari Þóroddssyni, og á þskj. 360, um stoðþjónustu, frá Diljá Mist Einarsdóttur.