tenging bóta almannatrygginga við launavísitölu.
Virðulegi forseti. Ríkisstjórnin leggur nú til grundvallarbreytingu á tengingu bótagreiðslna við launavísitölu. Í stað þess að bætur hækki með vísitölu neysluverðs er lagt til að þær hækki í takt við laun, þó aldrei minna en verðlag. Það kann að hljóma réttlátt á yfirborðinu en þetta felur í sér sjálfvirka útgjaldaaukningu úr ríkissjóði óháð hagvexti, atvinnustigi eða efnahagsástandi. Í umsögn sinni um málið bendir Viðskiptaráð á að launavísitalan hafi hækkað um 64% umfram verðlag síðustu mánuði. Ef þessi regla hefði verið í gildi þá væru bótagreiðslur nú mun hærri en þær eru án tillits til framleiðni, verðmætasköpunar eða samfélagslegra breytinga. Samtök atvinnulífsins hafa einnig gagnrýnt breytinguna harðlega og benda á að með þessu sé verið að rjúfa grundvallarmun á milli bóta og launa. Áhrifin geta verið alvarleg: Minni hvati til atvinnuþátttöku, skekktar forsendur fyrir kjarasamninga og auknar skuldbindingar ríkissjóðs til framtíðar. Undir þessar áhyggjur tekur fjármálaráð í álitsgerð sinni um fjármálaáætlun.
Því spyr ég hæstv. ráðherra: Hvernig samræmist þessi breyting ábyrgri fjármálastjórn ef hún leiðir til sjálfvirkrar útgjaldaaukningar á sama tíma og hætt er við að skattstofnar rýrni. Hvar eru greiningarnar á áhrifum hennar til lengri tíma? Að festa sjálfvirkar útgjaldahækkanir í lög án greiningar eða tengingar við raunveruleikann er ekki réttlætismál heldur fullkomið ábyrgðarleysi.