156. löggjafarþing — 33. fundur,  30. apr. 2025.

tenging bóta almannatrygginga við launavísitölu.

[15:06]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir þessa ágætu fyrirspurn sem í rauninni kemur ekki á óvart miðað við úr hvaða ranni hún rennur. Staðreyndin er jú sú að við höfum áður búið við 69. gr. almannatryggingalaga sem kvað á um að laun skyldu fylgja launaþróun í landinu en aldrei þó hækka minna en sem næmi neysluvísitölu og skyldi miða við þann þátt í löggjöfinni sem væri hagkvæmari fyrir bótaþega. Þessi grein heitir núna 62. gr. laga um almannatryggingar. Sú þróun sem hefur átt sér stað í samfélaginu frá efnahagshruni hefur orsakað það að kjaragliðnun hefur orðið slík og þvílík hjá fátækasta fólkinu í landinu að nú skeikar um ríflega 106.000 kr. á mánuði hvað það hefur dregist aftur úr frá því eftir efnahagshrun. Ég get ekki skilið þann guðlega mátt, með fullri virðingu, frú forseti, sem reynir að réttlæta það að halda sárafátæku fólki, sem á ekkert val og enga möguleika á að auka við tekjur sínar eða koma sér betur fyrir í samfélaginu en raun ber vitni, sem fatlað fólk eða eldri borgarar, jafnvel í neðstu tekjutíundunum, í því að þurfa að búa við, eða standa í röðum eftir því að biðja um mataraðstoð. Ég verð bara að segja að það er ekkert, akkúrat ekki neitt sem er óábyrgt við það að lyfta fólki upp úr sárri neyð. Það myndi nú sennilega skila sér í okurvirðisaukasköttum og öðru slíku ef viðkomandi gæti leyft sér hugsanlega að kaupa einu lambalæri meira á mánuði. En aldrei undir neinum kringumstæðum mun þessi ríkisstjórn heykjast á því að lyfta þeim upp úr sárri neyð sem þurfa á aðstoð okkar að halda. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)