tenging bóta almannatrygginga við launavísitölu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir síðari fyrirspurn. Mér þykir afskaplega leitt ef ég er orðin það tæp á því að vera skiljanleg að hv. þingmaður skilji ekki hvað ég er að reyna að segja. Ég ætla að einfalda svarið: Við erum einfaldlega að fylgja eftir gildandi lögum í landinu og tryggja að þeim verði fylgt en við verðum ekki sótt til saka fyrir að brjóta lög á almannatryggingaþegum og þeim sem í rauninni hefur verið tryggð ákveðin framfærsla samkvæmt gildandi 62. gr. laga um almannatryggingar. Ef það er mælikvarðinn á ábyrga fjármálastjórn eða hagstjórn að excel-skjalið líti vel út á pappírum á meðan helmingurinn af þjóðinni sveltur þá verð ég að segja að ég vísa því til föðurhúsanna. Þessi ríkisstjórn mun aldrei taka þátt í því, hv. þingmaður.