156. löggjafarþing — 33. fundur,  30. apr. 2025.

réttindi til leigubílaaksturs.

[15:14]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Hér er um mikilvægt mál að ræða, málefni leigubifreiða. Í þingflokkum stjórnarflokkanna í dag var samþykktur, og samþykkt í ríkisstjórn í gær, fyrsti áfangi í endurskoðun núgildandi laga sem voru samþykkt á Alþingi 2022. Það er heimild í núgildandi lögum til að endurskoða lögin frá 1. janúar sl. (Gripið fram í.)Já, sú endurskoðun er í gangi og við tókum fyrsta frumvarpið núna varðandi öryggi farþeganna.

Varðandi spurningu hv. þingmanns um leigubifreiðarprófin þá tel ég það vel koma til greina að skoða það alveg sérstaklega. Ég er búinn að beina því til míns ráðuneytis að skoða þetta. Það voru fréttir í morgun t.d. varðandi mögulegt svindl og Samgöngustofa fjallaði um það. Ég tel mjög mikilvægt að skoða þetta atriði mjög vel. Ég tel líka mikilvægt að við höfum þetta eins og í nágrannaríkjunum, eins og í Danmörku, Noregi og Svíþjóð og Bretlandi, að prófin verði á íslensku og ekki með aðstoð túlks og það verði ekki eitthvert símasamband við fólk úti í bæ á meðan verið er að taka próf. Allir sem hafa tekið próf hérna í skóla hafa vonandi gert það sjálfir, ekki með aðstoð annarra. Ef það hefur verið víðtækt svindl þá tel ég mjög vel koma til greina að þau verði endurtekin. Það myndi þá vera krafa um að þessir einstaklingar færu aftur í próf. Ég tel eðlilegt að leigubifreiðastjórar á Íslandi tali íslensku og hafi staðist próf sem var tekið með réttmætum hætti.