Sundabraut og Betri samgöngur.
Virðulegi forseti. Þetta eru skrýtnir tímar og það eru ný vinnubrögð hjá nýrri ríkisstjórn og ánægjulegt að sjá hæstv. ráðherra, það hefur þurft svolítið að leita að þeim. Maður sér jafnvel líka hv. þingmenn stjórnarliðsins en það hefur nú þurft leitarhunda til að finna þá hér í þinghúsinu þegar við erum að ræða mál sem þeir koma hér með. Síðan eru önnur sem malla án umræðu og ég er hér að tala um mál sem varða alla, sérstaklega fólk á höfuðborgarsvæðinu, kosta hundruð milljarða. Ég er að tala hér um Sundabraut og Sundagöng og ég er að tala um Betri samgöngur. Við sjáum í fjölmiðlum að þessu vindur áfram en við ræðum þetta ekki hér. Bara svo það sé sagt: Gallinn t.d. við núverandi hugmyndir og það sem er verið að skoða varðandi Sundabraut er að það eykur ekki umferðarflæði út af því að við endastöð er ekki gert ráð fyrir aukinni umferðarrýmd. Það fer í gegnum hverfi borgarinnar, fjórar akreinar á tveimur stöðum. Það verður inni í bíllausa hverfi Samfylkingarinnar og Viðreisnar sem er að vísu ekki bíllausara en svo að það er ekkert strætóskýli þar þannig að menn þurfa að fá leigubíl á kostnað borgarinnar til að komast í strætóskýli og þetta er ekki grín. Þetta kallar á flutning Samskipa með tilheyrandi kostnaði.
Síðan er það þannig að Betri samgöngur og Sundabraut tala ekki saman. Talandi um Betri samgöngur, en ráðherrann var á móti því hér áður en er núna búinn að taka U-beygju eins og í mörgu öðru, þá vita kannski fæstir að ástæðan fyrir því að svokölluð borgarlína er svo dýr er að það þarf að skipta um burðarlag á stórum hluta eða meiri hluta af vegum þar sem þeir keyra vegna þess að hinir svokölluðu nýju vagnar verða á þyngd við steypubíl. Hér er engin alvörurekstraráætlun til staðar og margt bendir til þess að þetta séu trúarbrögð frekar en að menn ætli hér raunverulega að bæta samgöngur á þessu svæði. (Forseti hringir.) Ég spyr hæstv. ráðherra: (Forseti hringir.) Telur hæstv. ráðherra ekki ástæðu til að taka umræðuna um þessi mál meðal þjóðar og þings?