156. löggjafarþing — 33. fundur,  30. apr. 2025.

Sundabraut og Betri samgöngur.

[15:31]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ef hæstv. ráðherra vill flýta þessu þá verða menn auðvitað að taka umræðuna. Þau göng sem er verið að skoða leysa ekki þann vanda sem er algerlega fyrirsjáanlegur með núverandi áætlun. Ég minntist líka á Betri samgöngur. Hæstv. ráðherra var fyrir kosningar með stórar yfirlýsingar um það og það verða tafir ef menn ræða ekki við íbúa, ef menn ræða ekki við þjóðina, af því að það eru líka hugmyndir um stórkostlegar gjaldtökur á Reykvíkinga og aðra höfuðborgarbúa í það minnsta í tengslum við þetta. Það er alveg augljóst að ef menn ætla ekki að leggja þetta á borðið og ræða þetta, það vantar ekki skýrslurnar, þá verða tafir og okkur liggur á. Ég er búinn að bíða hér eftir sérstakri umræðu við hæstv. ráðherra lengi bara um það sem snýr að Sundabrautinni, en þetta tengist. Það er ekki hægt að tala um samgöngur á þessu svæði og reyna að skilja að Sundabraut (Forseti hringir.) eða Sundagöng og Betri samgöngur. Það er algjörlega fráleitt. Og menn verða að svara (Forseti hringir.) þeim spurningum sem hafa verið ávarpaðar varðandi Betri samgöngur. (Forseti hringir.) Þing og þjóð eiga rétt á því.