156. löggjafarþing — 33. fundur,  30. apr. 2025.

skipan í stjórnir Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og Tryggingastofnunar ríkisins.

[15:36]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir þessa frábæru fyrirspurn. Samkvæmt lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna kemur fram að þegar tilnefnt er í stjórnir er heimilt að víkja frá þeirri meginreglu að tilnefna skuli bæði karl og konu ef hlutlægar ástæður leiða til þess, t.d. eru slíkar ástæður hæfi stjórnarmanna. Í tilviki skipunar stjórnar HMS nýverið skipaði ég þá aðila sem ég taldi hæfasta til að fylgja þeirri stefnu sem ríkisstjórnin hefur í húsnæðismálum. Nefndin er pólitískt skipuð enda eru verkefni stjórnarinnar af pólitískum toga, þ.e. að fylgja eftir húsnæðisstefnu ríkisstjórnarinnar. Þetta ætti hv. þingmaður að þekkja mætavel með alla sína þinglegu reynslu úr sínum frábæra flokki. Samband íslenskra sveitarfélaga sem tilnefnir einn stjórnarmann tilnefndi karl en ekki konu með vísan til sérþekkingar viðkomandi. Ég skipaði auk þess tvær konur sem varamenn stjórnar og ég treysti stjórn HMS fullkomlega til að fylgja eftir stefnu ríkisstjórnar í húsnæðismálum og hjálpa okkur í því mikilvæga verkefni sem er að brjóta land, sem er að byggja meira og koma böndum á okurverð á húsnæðismarkaði. Við viljum búa í landi þar sem allir geta eignast þak yfir höfuðið.

Hvað lýtur að hæfi stjórnarmanna, ég kannski kem að því betur í öðru svari, við eigum inni annað svar, þá vil ég benda á hvað varðar stjórnarmenn núna að Sigurður Tyrfingsson, sem er stjórnarformaður Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, er ekki einungis húsasmíðameistari heldur hefur hann verið á húsnæðismarkaði meira og minna allt sitt líf, bæði sem fasteignasali og eigandi fasteignafélags og annað slíkt. Rúnar Sigurjónsson hefur mikla reynslu af borgarmálum og skipulagsmálum í Reykjavíkurborg. Við erum með Jónas Yngva Ásgrímsson sem var í stjórn Verslunarfélags Reykjavíkur, VR, og hefur mikla þekkingu á bæði verkalýðsmálum og uppbyggingu á húsnæðismarkaði. Við erum með Oddnýju Árnadóttur (Forseti hringir.) sem er formaður Landssambands eldri borgara. Við teljum afskaplega mikilvægt að fá þessa breidd inn í stjórn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. (Forseti hringir.) Við ætlum hins vegar að halda Framsóknarmanninum frábæra sem er framkvæmdastjóri og ætlum ekki að gera neina athugasemd við það. En ég er virkilega stolt af nýrri stjórn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Við skulum kíkja á Tryggingastofnun í næsta svari.

(Forseti (EÁs): Ég bið hæstv. ráðherra að virða ræðutímann.)