skipan í stjórnir Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og Tryggingastofnunar ríkisins.
Virðulegur forseti. Það er ágætt að heyra að Framsóknarmaðurinn fær að sitja þarna í skjóli kannski lögbundinnar stjórnarsetu. Ég skil ráðherrann þannig að hún líti svo á að þessi stjórn, sem ég vænti þá að sé umfram allar aðrar stjórnir á vegum ráðherra þessarar ríkisstjórnar, sé pólitískt skipuð og að þessi skipan hafi verið í því ljósi að þessir ágætu einstaklingar, sem ég efast ekki um að séu hæfir til alls kyns hluta, m.a. mögulega til setu í þessari nefnd, séu það hæfir að þurft hafi að víkja frá skýrum ákvæðum jafnréttislaga um að gæta að sem jöfnustu hlutfalli kynjanna í þessu. Það er líka áhugavert að heyra það að Samtök sveitarfélaga hafi talið sér heimilt að tilnefna bara einn mann í sama ljósi. En hæstv. ráðherra svaraði hins vegar ekki fyrirspurn minni um ársfund Tryggingastofnunar ríkisins (Forseti hringir.) og ég ætla að ítreka þá spurningu. Ég spyr sem sagt hvenær von sé á skipun nýrrar stjórnar Tryggingastofnunar.