156. löggjafarþing — 33. fundur,  30. apr. 2025.

fjölmiðlar.

256. mál
[15:50]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsögu hans um þetta frumvarp sem fjallar einmitt um tímabundna endurupptöku á stuðningi við einkarekna fjölmiðla. Þetta er auðvitað bara mikilvægt skref til að tryggja áframhaldandi aðkomu ritstýrðra miðla að lýðræðislegri umræðu og aðgengi almennings að fjölbreyttum og vönduðum fréttum. En hér er auðvitað eingöngu um að ræða tímabundið úrræði, ekki stefnumótandi framtíðarsýn, líkt og ráðherra kom inn á hér áðan. En þrátt fyrir viðurkennt mikilvægi fjölmiðla og áhyggjur margra umsagnaraðila sem kalla eftir festu og fyrirsjáanleika þá er skortur á því í þessu máli. Í fjármálaáætlun til ársins 2030 er ekki að finna neinar sérstakar áherslur né mælikvarða á árangur af stuðningnum.

Mig langar að velta því fyrir mér, af því að hæstv. ráðherra kom inn á að það væri gagnger endurskoðun á kerfinu í heild sinni í gangi eða væri að fara af stað: Mun hæstv. ráðherra tryggja að þessari bráðabirgðalöggjöf verði fylgt eftir með varanlegum lagabreytingum á haustþingi og að slík löggjöf verði studd með fjármagni og mælikvörðum í fjármálaáætlun ríkisins?